fbpx
Laugardagur 27.júlí 2024
Fréttir

Emma er fyrrverandi aðstandandi alkóhólista – „Þeir geta ekki beðið með að opna flösk­una“

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 29. maí 2024 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mikið hefur verið rætt og ritað um þá ákvörðun forsvarsmanna Hagkaupa að hefja netsölu á áfengi. Ef fer sem horfir munu viðskiptavinir verslunarinnar geta pantað áfengi og sótt í Skeifuna og mun Hagkaup þar með bætast í hóp þeirra fjölmörgu verslana sem selja áfengi í netsölu hér á landi.

Sitt sýnist hverjum um þetta og á meðan sumir fagna betra aðgengi eru margir því mótfallnir. Emma Holm, fyrrverandi aðstandandi alkóhólista, skrifar aðsenda grein í Morgunblaðið í dag þar sem hún beinir orðum sínum að Guðrúnu Hafsteinsdóttur dómsmálaráðherra.

 „Loks­ins þegar við höf­um skyn­sam­an heil­brigðisráðherra, ætl­ar þú sem dóms­málaráðherra að beita þér fyr­ir auknu aðgengi að áfengi? Ég veit að flokk­ur­inn þinn stend­ur með Hag­kaup og net­versl­un­um í að hleypa áfeng­inu lausu frá rík­inu, en ég bind mikl­ar von­ir við að þú, sem kona og ráðherra dóms­mála, beit­ir þér fyr­ir því að stöðva lög­leys­una sem á sér stað fyr­ir allra aug­um. Áfengi selt á net­inu og börn ginnt fyr­ir fram­an nefið á okk­ur. Hvar er kven­legt inn­sæi þitt?“

Emma hefur áhyggjur af því að alkóhólistar, sem hafa eytt vikum í meðferðum og reyna sitt allra besta til að halda sjúkdómnum í skefjum, muni falla fyrir auknu aðgengi í fljótfærni. Hefur hún enga samúð með þeim sem geta leyft sér þann munað að drekka áfengi án vandræða. Þeir geti ósköp vel skipulagt sig þannig að kaupa á afgreiðslutíma og geyma þar til tappinn er dreginn úr. „En það geta sjúk­ir ekki. Þeir geta ekki beðið með að opna flösk­una.“

Emma er þeirrar skoðunar að útibú ÁTVR – bæði á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni – séu nógu mörg og meira að segja með opið meira en gott þykir. Ætti jafnvel að stytta afgreiðslutímann og fækka búðunum, að hennar mati.

„Heil­brigt fólk get­ur átt flösku í skáp þar til tæki­færi gefst til að gera sér glaðan dag. En þeir sem eru veik­ir fyr­ir víni (og þeir eru mjög marg­ir) ættu auðveld­ara með að sniðganga vín ef það væri ekki úti um allt. Þeir gætu e.t.v. sparað þjóðfé­lag­inu nokkr­ar meðferðir. Eins ef þeir fá stuðning eft­ir meðferð. Ef dóms­málaráðherra ætl­ar að fela sig á bak við EES þá þurf­um við bara und­anþágu eða ein­fald­lega að fara úr því. Það nær engri átt að þeir ákveði hvernig Ísland fer með sína þegna. Það er fá­rán­legt að ut­anaðkom­andi áhrif skuli ákv­arða ör­lög ís­lensku þjóðar­inn­ar.“

Netverslun með áfengi: Hagkaup opnar áfengisverslun í Skeifunni

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Verð á matvöru hækkar hratt – Hér hefur það þó hækkað mest

Verð á matvöru hækkar hratt – Hér hefur það þó hækkað mest
Fréttir
Í gær

Helgarferð innanlands eða erlendis? – „43.000 ódýrara fyrir okkur að fljúga til London“

Helgarferð innanlands eða erlendis? – „43.000 ódýrara fyrir okkur að fljúga til London“