fbpx
Mánudagur 06.janúar 2025
Pressan

Myrti fimm barna móður til að ræna yngsta barninu hennar

Pressan
Sunnudaginn 2. júní 2024 20:30

Carolina Flores.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Erika MirandaAlvarez var í síðustu viku dæmd í 40 ára fangelsi af dómstól í Houston í Texas fyrir að hafa stungið Carolina Flores til bana og fyrir að ræna sex vikna barni hennar.

Erika gerði þetta eftir að hafa misst fóstur. Mirror segir að Erika, sem er 35 ára, hafi játað að hafa stungið Carolina, sem var 33 ára, til að geta rænt yngsta barni hennar, sem var sex vikna gamalt.

Erika og Carolina höfðu verið vinkonur árum saman og voru báðar barnshafandi á sama tíma en Erika missti fóstrið.

Hún sagðist hafa skipulagt hvernig hún gæti rænt barninu eftir að hún missti fóstrið.

Saksóknarar segja að verjendur hennar hafi haft í hyggju að bera því við að hún hafi verið geðveik þegar hún myrti Carolina og því buðu þeir henni að játa morðið og barnsránið á sig til að tryggja að hún sitji í fangelsi næstu áratugina.

Erika Miranda-Alvarez.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Erika og Carolina voru nánar vinkonur en Erika leyndi vinkonu sína því að hún hefði misst fóstrið. Skömmu áður en hún myrti hana, laug hún að henni að hún væri búin að fæða barnið.

Carolina var stungin til bana heima hjá sér þann 19. desember 2017. Ættingjar hennar fundu lík hennar og áttuðu sig strax á að yngsta barn hennar var horfið.

Lögreglan fínkembdi næsta nágrenni næstu tvo daga í leit að barninu. Auglýst var eftir því á landsvísu og að lokum hafði lögreglan uppi á því heima hjá Erika. Barnið var ómeitt. Í vasa Erika fundust tvö armbönd frá sjúkrahúsinu, eitt merkt Carolina og hitt barninu. Daily Mail skýrir frá þessu.

Hluti af samningi Erika við saksóknara er að hún getur ekki áfrýjað dómnum og getur ekki sótt um reynslulausn fyrr en eftir 20 ár.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Maðurinn í Teslunni: Konan fór frá honum um jólin vegna gruns um framhjáhald

Maðurinn í Teslunni: Konan fór frá honum um jólin vegna gruns um framhjáhald
Pressan
Fyrir 2 dögum

Nóbelsverðlaunahafi segir auknar líkur á að gervigreind útrými mannkyninu

Nóbelsverðlaunahafi segir auknar líkur á að gervigreind útrými mannkyninu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Þetta hefur aspasspákonan að segja um árið 2025

Þetta hefur aspasspákonan að segja um árið 2025
Pressan
Fyrir 3 dögum

Skoskur grínisti sturlaðist á bandarískum flugvelli

Skoskur grínisti sturlaðist á bandarískum flugvelli
Pressan
Fyrir 4 dögum

Árásarmaðurinn fæddur og uppalinn í Bandaríkjunum og þjónaði í hernum – Lögregla skoðar möguleg tengsl við ISIS

Árásarmaðurinn fæddur og uppalinn í Bandaríkjunum og þjónaði í hernum – Lögregla skoðar möguleg tengsl við ISIS
Pressan
Fyrir 4 dögum

Dularfulla brúin í Skotlandi – Af hverju stökkva hundar í dauðann þegar þeir koma að henni?

Dularfulla brúin í Skotlandi – Af hverju stökkva hundar í dauðann þegar þeir koma að henni?