Forsetakosningarnar eru á allra vörum þessa dagana og ef marka má umræður á samfélagsmiðlum sátu margir fyrir framan sjónvarpið og horfðu á viðtalið við Steinunni Ólínu. Hafa margir hrósað frambjóðandanum fyrir skýr og góð svör í þættinum.
„Steinunn Ólína var aldeilis að rokka í sjónvarpinu í kvöld. Hef bara sjaldan, ef nokkru sinni, orðið vitni að skeleggari málflutningi fyrir hönd íslenskra hagsmuna. Englasöngur í mínum eyrum,“ sagði Ólína Þorvarðardóttir, fyrrverandi þingkona og forseti félagsvísindadeildar Háskólans á Bifröst, á Facebook.
Margir tóku undir með henni. „Þetta var hressilegri yfirferð en ég hef heyrt frá nokkrum öðrum frambjóðenda, eða stjórnmálamanni yfir höfuð,“ sagði Þór Saari sem sat á þingi á árunum 2009 til 2013. „Virkilega góð og málefnaleg og lét ekkert vaða yfir sig,“ sagði annar og enn annar bætti við: „Hún átti stórleik í kvöld – kom sínum baráttumálum vel til skila.“
Helga Vala Helgadóttir, lögmaður og fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar, var einnig ánægð með Steinunni Ólínu. „Mikið var hún Steinunn Ólína mögnuð í kvöld. Það er eitthvað svo satt og gott við hana,“ sagði hún og tóku margir í svipaðan streng í athugasemdum undir.
„Ég varð orðlaus af hrifningu. Talar hreint út um málin. Ekkert kjaftæði,“ sagði einn á meðan annar bætti við: „Feiknalega flott frammistaða.“
Einar Steingrímsson stærðfræðingur hreifst líka af Steinunni Ólínu og þá sérstaklega því sem hún sagði þegar hún var spurð hvað drífur hana áfram. „Sú staðreynd að nú eru uppi áform um að selja frá okkur auðlindir og váleg tíðindi í orku- og auðlindamálum,“ svaraði Steinunn.
Viktor Orri Valgarðsson stjórnmálafræðingur hrósaði Steinunni Ólínu einnig fyrir frammistöðuna.
„Sjitt hvað Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir var flott í Forystusætinu á Rúv í kvöld. Óháð því hvað fólki finnst um hana og hennar framboð/málefni þá var þetta einhver öflugasta frammistaða sem ég hef lengi séð í svona pólitískum viðtalsþætti.“