fbpx
Laugardagur 20.júlí 2024
Fókus

Líf Sævars hangir á bláþræði – Vísað frá af læknum sem segja hann haldinn sjúklegri viðurkenningarþörf og athyglissýki

Ragna Gestsdóttir
Mánudaginn 27. maí 2024 13:30

Sævar Kolanduvelu

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Aðsend grein frá Alkastinu:

Nýjasti gestur Alkastsins sem er í boði Þvottahús-samsteypunar er engin annar en Sævar Kolanduvelu sem einnig gengur undir listamannsnafninu Poetrix. Þetta viðtal krafðist heimavitjunar í fyrsta skiptið í sögu Þvottahússins því Sævar er stórslasaður og á því erfitt með samgöngur. Því fór viðtalið fram í eldhúsinu hjá Sævari í Kópavogi. 

(Alkastið fór í heimavitjun í þetta skiptið og því eru hljómgæði ekki eins og á að venjast.)

Sævar, sem var áberandi fyrir tæpum tveim áratugum á íslensku rappsenunni, er staddur á tímamótum þar sem líf hans hangir á bláþræði. Fyrir um átta árum síðan varð hann fyrir meiðslum sem ofan á genetískan stoðkerfisgalla er búinn að setja allt stoðkerfið og andlega heilsu hans bókstaflega á hvolf. 

Meiðslin lýsa sér þannig að liðband sem heldur saman spjaldhrygg, neðstu hryggjarliðum og mjaðmagrindinni og festir hrygginn við mjöðm, er slitið. Sævar lýsir því svo að vegna þessa séu þessir líkamshlutar hreinlega að rifna sundur og hryggurinn að losna smám saman frá mjöðminni. Slitið veldur því að hryggur hans togast langt umfram eðlilega hreyfigetu, en slíkt kallast á ensku out of save limits og öll liðbönd í baki hans eru hreinlega að rakna upp.

Þetta ferli veldur svo keðjuverkun og er Sævar í dag með a.m.k. 16 aukaáverka víðsvegar um líkamann. Til þess að fá bót sinna meina þarf að festa saman á honum spjaldhrygginn, neðstu hryggjarliðina og mjaðmagrind með skrúfum og gera aðgerð á mjaðmakúlunni sem er farin að losna úr liðnum.

Þá þarf að laga meðfæddan stoðkerfisgalla á neðri ganglim sem hefur mikil áhrif á líkamsbeitingu og er talin vera ein af orsökum þess að liðbandið slitnaði til að byrja með, en stoðkerfisgallinn veldur því að óeðlilegt álag myndast á þetta tiltekna liðband.

Í viðtalinu fer Sævar yfir viðbrögð hins íslenska heilbrigðiskerfis sem, vægast sagt miðað við lýsingarnar, eru hreint út sagt hræðilegar. Skipti eftir skipti hefur honum verið vísað út af læknum og heilbrigðisstarfsfólki með þau skilaboð að meislin séu af andlegum toga og að hann sé haldinn sjúklegri viðurkenningarþörf og athyglissýki. 

Það sem Sævar vill meina að þurfi að gera er að saga hann allan í sundur og skrúfa saman aftur. Smíða þurfi bæði mjöðm og fótlegg upp á nýtt með öllu sem því fylgir. Einnig segist hann þurfa aðgerð á hálsi. En til að vel geti farið þarf að byrja aðgerðirnar neðan frá og vinna sig upp á við til að líkur hans á eðlilegu lífi séu sem bestar.

Hann hefur þegar farið í tvær aðgerðir, þar sem varð að fjarlægja úr honum rif vegna afleidds liðbandaskaða og það farið úr lið, þrengjandi að æðum í hálsinum; lífsógnandi ástand. Þó sú aðgerð hafi bjargað lífi hans á þeim tímapunkti, veikti hún stoðkerfið enn frekar. 

Það sem Sævar vill meina að þurfi að gera er að saga hann allan í sundur og skrúfa saman aftur.

Sævar hefur þurft að gera allar rannsóknir sjálfur, og ferðast erlendis í leit að hjálp til að berjast fyrir því að greining sín yrði samþykkt í læknasamfélaginu.

Sævar segist vel skilja viðhorf lækna hér á landi með tiliti til að hann skilji hvað búi að baki því mótlæti og hroka sem hann hefur mætt. Fyrir lækna með margra áratuga langa menntun á bakinu sé það upplifað sem klár ógn við stöðu þeirra sem fagmenn, sem og stöðu þeirra í hálfbugu heilbrigðiskerfi hér á landi, þegar hér komi einhver strákpjakkur með mikla áfalla- og fíknisögu og beri á borð greiningar sem hann sjálfur hefur greint ásamt anatómískri aðgerðaráætlun. 

Hann telur svo vera að enginn heilbrigðisstarfsmaður meini neitt illt með þessu heldur sé aðeins um vissan sjálfsvarnarmekanisma að ræða sem framkallar þessi viðbrögð. Gunnar spurði hann hvort hann, með alla sína greind, hefði getað spilað þetta á einhvern annan hátt svo að skilvirkt ávarp eða meðhöndlun hefði átt sér stað. Sævar vill ekki meina að svo sé. Hann vill meina að hann hafi lengi vel komið með litla sem enga vitneskju um hvað amaði að sér og fullur auðmýktar en eitthvað virtist standa í vegi fyrir því ferli sem hann átti von á að myndi hefjast þegar hann óskaði eftir aðstoð, kvalinn og þjáður. 

Staðan á Sævari er sú í dag að söfnun er hafin fyrir þremur aðgerðum sem framkvæmdar verða í Tyrklandi.

Staðan á Sævari er sú í dag að söfnun er hafin fyrir þremur aðgerðum sem framkvæmdar verða í Tyrklandi. Aðgerðirnar sem fyrirhugaðar eru hafa verið skipulagðar af tyrkneskum læknum í samræmi við þeirra rannsóknir sem og þeim upplýsingum sem Sævar hafði safnað og greint sjálfur á ástandinu sem tyrknesku læknarnir hafa staðfest að séu réttar. Eftir að teymi af  bæklunar- og heila- og taugaskurðlæknum eyddu viku í að fara yfir gögnin, útskýrðu þeir að þeir væru sammála greiningunni, og aðgerða væri þörf til að laga meðfæddan stoðkerfisgalla á neðri ganglim, sem og á mjaðmalið og að lokum að festa saman neðstu þrjá hryggjarliði, spjaldhrygg og mjaðmabein saman og gera stöðugt. 

Til að koma í veg fyrir að meiðsli hans versni, en honum hrakar stöðugt, og leiði ekki til lömunar eða þaðan af verra ástands, þarf 7 milljónir isk fyrir lækniskostnað. Hingað til hafa hann og fjölskylda hans þurft að borga enn meira úr eigin vasa.

Þetta hefur verið langt ferðalag, sem hann hefur þurft að leggja líf sitt og aðrar persónulegar vonir til hliðar til að leggja allt sitt átak í – og er nú nálægt því að láta kraftaverkið gerast sem hann hefur beðið eftir. 

Til að safna þeim peningum sem til þarf setti Sævar, ásamt góðu fólki sem styður við hann, af stað verkefnið THUGMONK. Það gerir fólki kleift að kaupa vörur og mun afrakstur þessarar sölu renna beint í sjóð sem fjármagna mun þessar þrjár fyrirhuguðu aðgerðir. Sjá hér. 

Þetta magnaða viðtal við Sævar má heyra og sjá hér fyrir ofan en einnig má heyra öll viðtöl Alkastins á öllum streymisveitum eins og Spotify og YouTube þar sem hægt er að tengja við rásina og fá nýjustu viðtölin frítt heima í stofu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Atli tilnefndur til EMMY-sjónvarpsverðlauna

Atli tilnefndur til EMMY-sjónvarpsverðlauna
Fókus
Fyrir 2 dögum

Deilir Íslandsheimsókn í beinu streymi – Þúsundir fylgjenda horfa

Deilir Íslandsheimsókn í beinu streymi – Þúsundir fylgjenda horfa