Kumar notast við Vedic stjörnuspeki kort, sem byggist á stöðu pláneta og stjarna, til að spá fyrir um framtíðina.
The Daily Star segir að hann haldi því fram að kortið hafi áður sýnt honum að spenna færi vaxandi á milli Ísraels og Hamas, Norður- og Suður-Kóreu, Kína og Taívan og á milli Rússlands og Úkraínu. Það má færa rök fyrir því að ekki þurfi neina stjörnuspeki til að spá fyrir um þetta en Kumar er sannfærður um eiginn hæfileika og telur að stjörnurnar hafi sagt honum þetta.
En þær hafa líka sagt honum hvenær þriðja heimsstyrjöldin hefst og þess er ekki langt að bíða.
Kumar telur miklar líkur á að þriðja heimsstyrjöldin brjótist út þann 18. júní næstkomandi. Hann segir að mestar líkur séu á að styrjöldin hefjist þennan dag en ekki sé útilokað að það gerist 10. júní eða 29. maí.