Eflaust hafa margir ekki hugsað mikið um kórónuveiruna í langan tíma en veiran er enn til þrátt fyrir að lítil fjölmiðlaumfjöllun sé um hana. Svona að minnsta kosti ef miðað er við það sem var á tímum heimsfaraldursins.
Veiran heldur áfram að stökkbreytast og nú hefur nýtt afbrigði náð yfirhöndinni víða um heim, meðal annars í Bandaríkjunum.
TV2 hefur eftir Espen Rostrup Nakstad, aðstoðarlandlækni Noregs, að nýja afbrigðið hafi ekki enn fundist þar í landi en líklega muni það berast þangað.
Hann sagði afbrigðið vera þróaðri útgáfu af hinu þekkta omikron-afbrigði sem sé vel þekkt.
Ný afbrigði eiga yfirleitt auðveldara með að sneiða framhjá ónæmisvörnum líkamans en ekki hafa borist fréttir af því að þetta afbrigði valdi alvarlegri veikindum en önnur afbrigði.
En hins vegar virðist það vera mjög smitandi.
Í Bandaríkjunum hefur hlutfall kórónuveirusmita af völdum nýja afbrigðisins farið úr nokkrum prósentum upp í tæplega þrjátíu prósent á tveimur mánuðum. Afbrigðið er því eitt það mest smitandi sem er í umferð núna.
Andy Pekosz, prófessor í ónæmisfræði við John Hopkins háskólann í Bandaríkjunum, sagði að ekki sé útilokað að til nýrrar smitbylgju komi. Þetta afbrigði sé ofarlega á hans lista yfir þau afbrigði sem geta valdið nýrri bylgju.