Giftar stjörnur í ensku úrvalsdeildinni hafa lengi verið í umræðunni og eru ensk slúðurblöð dugleg að fjalla um þeirra líf utan vallar.
Þar er fullyrt að margir giftir menn borgi 30 þúsund pundi á ári eða tæplega fimm milljónir króna og fái á móti boð um að mæta í kynlífspartý víðsvegar um heiminn.
Það er fyrirtækið Cinderella Escorts sem sér um að halda þessi partí en þar starfa fylgdardömur sem fá vel borgað fyrir sín störf.
Dömurnar þéna allt að tvö þúsund pund fyrir hvern klukkutíma og ferðast til að hitta stjörnurnar á rándýrum hótelum.
Ein fylgdardama sem ber nafnið Ksenia tjáði sig málið um eigin upplifun en þá var haldið teiti eftir sigurleik félags í efstu deild Englands.
,,Það voru allir blindfullir og dönsuðu þar til klukkan varð níu að morgni til,“ sagði Ksenia.
,,Allir mennirnir hoppuðu ofan í sundlaugina í fötunum og alls staðar þá voru konurnar að kela við þá.“
,,Þessi dagur var klikkaður. Það voru opnaðar um 600 kampavínsflöskur.“