Myndband frá 5. mars 2016 styður frásögn söngkonunnar Cassie Ventura um hrottalegt ofbeldi þáverandi kærasta hennar Sean „Diddy“ Combs.
Í myndbandinu sem samanstendur af upptökum úr eftirlitsmyndavélum á InterContinental hótelinu í Los Angeles sést Diddy hlaupa á eftir Ventura niður hótelganginn, þar sem hún bíður eftir lyftu. Sést hann grípa í hnakkann á henni, kasta henni í gólfið og sparka í hana. Ventura liggur hreyfingarlaus á gólfinu þegar Diddy snýr sér við og sparkar aftur í hana. Hann dregur hana síðan í áttina að hótelherbergi sínu áður en hann gengur í burtu. Ventura stendur loks upp og kemur Diddy þá aftur og hrindir henni í gólfið. Stuttu seinna hendir hann hlut í átt að henni.
Ventura höfðaði mál gegn rapparanum í fyrra þar sem hún sakaði hann um nauðgun og líkamlegt ofbeldi. Komust þau að samkomulagi utan dómstóla daginn eftir. Diddy neitaði öllum ásökunum og sagði gullgrafara reyna að eyðileggja mannorð hans og fjölskyldu hans.