fbpx
Laugardagur 31.ágúst 2024
Fréttir

Þorgerður Katrín las Bjarna pistilinn: „Ég vil hvetja fólk til þess að skoða heimabankann hjá sér“

Einar Þór Sigurðsson
Föstudaginn 17. maí 2024 12:44

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, þingmaður og formaður Viðreisnar, las yfir Bjarna Benediktssyni forsætisráðherra á Alþingi í morgun.

„Það hefur oft skort á veruleikatengingu í þessum sal af hálfu ríkisstjórnar og ekki síst ráðherra hennar. Í gær var bara eitt besta kennslubókardæmið um gaslýsingu þegar hæstvirtur forsætisráðherra sagði að árið 2024 væri sterkasta ár í efnahagssögu Íslands. Heyrið þið það, sterkasta ár. Sjáið þið ekki veisluna? Enn og aftur dregið fram hér.“

Þorgerður benti á ýmis atriði sem grófu undan þessari fullyrðingu Bjarna sem hann lét falla á Alþingi í gær.

„Við erum með vexti yfir 6%, vexti í meira en heilt ár vel yfir 9%, halli er á fjárlögum í a.m.k. tíu ár. Verðbólgumarkmið Seðlabankans nást ekki fyrr en eftir tvö ár. Sex ár yfir verðbólgumarkmiðum. Það er sterkasta árið í efnahagssögu Íslands. Ég vil hvetja fólk til þess að skoða heimabankann hjá sér. Skoðið hvort verðtryggðu lánin, óverðtryggðu lánin hafa hækkað. Skoðið strimilinn þegar þið farið út í búð. Hefur eitthvað hækkað? Það hefur allt hækkað. Skoðið húsnæðislánin ykkar, skoðið hvernig buddan ykkar hefur þróast.“

Þorgerður sagði að það sem við erum að horfa upp á hér sé enn og aftur þessi skortur á veruleikatengingu sem því miður háir ríkisstjórninni.

„Við erum að sjá það að allir óháðir sérfræðingar eru að benda ríkisstjórninni mjög vinsamlega á það að öll plön hennar eru ótrúverðug. Það er orðið sem er notað. Sérfræðingar segja: Plön ríkisstjórnarinnar í ríkisfjármálum eru ótrúverðug. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn segir það sama á mjög penan hátt: Þið eruð óraunsæ og með ótrúverðugar áætlanir. En ráðherra og forystumaður í ríkisstjórn segir: Þetta er sterkasta ár Íslands í efnahagssögunni. Segið íslenskum heimilum það. Í staðinn er verið að sparka í heimilin sem er að reyna að koma sér í skjól undan íslensku krónunni og þessari efnahagsstjórn en það er verið að kvarta undan því að íslensk heimili séu að leita að þessu skjóli og segja sig úr lögum við verðbólgumarkmið Seðlabankans. Er ekki tími til kominn að tengja, segir í laginu, tengja, tengja, tengja?“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Hættuleg umferðarljós í Langholtshverfi vekja reiði íbúa – „Það munaði svo litlu að keyrt væri yfir hana“

Hættuleg umferðarljós í Langholtshverfi vekja reiði íbúa – „Það munaði svo litlu að keyrt væri yfir hana“
Fréttir
Í gær

Banaslys í Garðabæ

Banaslys í Garðabæ
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Meintur raðnauðgari ákærður fyrir brot gegn fjórum konum – Nýtti sér að þær gátu ekki spornað við ofbeldinu og tók háttsemina upp

Meintur raðnauðgari ákærður fyrir brot gegn fjórum konum – Nýtti sér að þær gátu ekki spornað við ofbeldinu og tók háttsemina upp
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Yfirlýsing frá Ice Pic Journeys – Harma mjög banaslysið

Yfirlýsing frá Ice Pic Journeys – Harma mjög banaslysið
Fréttir
Fyrir 2 dögum

CIA segir að markmiðið hafi verið að drepa þúsundir manna

CIA segir að markmiðið hafi verið að drepa þúsundir manna
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ung kona lést þegar eftirlíkingu af víkingaskipi hvolfdi í Noregi – Festist undir bátnum

Ung kona lést þegar eftirlíkingu af víkingaskipi hvolfdi í Noregi – Festist undir bátnum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Helgi Magnús ákveðinn: „Ég mun fara alla leið með þetta og gef ekkert eftir“

Helgi Magnús ákveðinn: „Ég mun fara alla leið með þetta og gef ekkert eftir“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Björguðu manni úr sjálfheldu – Kaldur og skelkaður þegar hann kom niður

Björguðu manni úr sjálfheldu – Kaldur og skelkaður þegar hann kom niður