Fjallað er um þetta í nýjasta tölublaði Heimildarinnar sem kom út í dag. Bjarni segist ekki vita til þess að eitthvað sérstakt tilefni krefjist þess að öryggisverðir fylgi honum nú og þá hafi hann ekkert með þá ákvörðun að gera að öryggis hans sé gætt.
Bjarni segir við Heimildina að hann hafi verið með öryggisverði á köflum en sjálfur reynir hann að leiða þá hjá sér. „Þeir eru nokkuð góðir í að vera ósýnilegir þannig að ég geti sinnt mínum störfum,“ segir hann en í Heimildinni kemur fram að öryggisráðstafanir æðstu stjórnenda þjóðarinnar byggist á áhættumati frá ríkislögreglustjóra.
Bjarni er tiltölulega nýtekinn við sem forsætisráðherra af Katrínu Jakobsdóttur sem hafði verið forsætisráðherra frá 2017. Katrín var í forsíðuviðtali við Mannlíf árið 2021 sem sagði 2-5 lífverði fylgja henni þegar hún fer til útlanda í embættiserindum. Hér heima hefði ekki verið talin þörf á því.
„Það sleppur engin í minni stöðu alveg við áreiti. Oftast er þetta allt góðu og aðeins fólk sem þarf að tala, þó það sé æst. Ég hef alveg lent í leiðinlegum hlutum en kannski er ég búin að byggja upp harðan skráp. Hér heima hef ég ekki þurft að vera með lífverði sem eru algjör forréttindi,“ sagði Katrín við Mannlíf.