Morgunblaðið fjallar um þetta en sendiherra Kína hér á landi, He Rulong, sagði á hádegisverðarfundi með Morgunblaðinu og Viðskiptablaðinu á dögunum að hann hefði fundað með Guðmundi Daða um málið.
Guðmundur segir að Isavia sé að hefja samtalið við kínverska sendiráðið um málið. Ekki sé eingöngu horft til kínverskra ferðamanna heldur einnig þeirra verðmæta sem beint flug til Kína getur skapað fyrir íslenskt atvinnulíf, til dæmis með útflutningi.
„Samtalið er að byrja og við teljum að það sé þriggja til fimm ára verkefni að fá beint flug,“ segir hann.
Guðmundur segir að Isavia hafi hitt fulltrúa níu flugfélaga í Asíu, þar af sex frá Kína, á síðustu tólf mánuðum. Enn eigi eftir að koma í ljós hvaða flugfélög hafi mestan áhuga. „Við teljum að líklegustu borgirnar séu Shanghai eða Peking til að byrja með.“
Það tekur drjúga stund að fljúga til Kína og bendir Guðmundur á að flugtími frá Keflavík til Peking sé 9 klukkustundir og 55 mínútur. Ein hugmyndin sé að flogið verði hingað frá byrjun september og fram í apríl sem gæti hentað vel fyrir íslenska ferðaþjónustu.