Þrjú þúsund staðfest tilfelli hafa komið upp í Bretlandi á árinu en það er þrisvar sinnum meira en allt árið 2023.
Kíghósti hefur einnig verið að greinast á Íslandi að undanförnu en rúmur mánuður er síðan fyrstu tilfellin greindust á höfuðborgarsvæðinu. Síðast greindist pestin hér á landi árið 2019. Í síðustu viku höfðu sautján einstaklingar greinst með kíghósta hér á landi á örfáum vikum.
Kíghósti er alvarleg öndunarfærasýking hjá börnum, einkum á fyrstu mánuðum ævinnar. Hjá unglingum og fullorðnum einkennist sjúkdómurinn af langvarandi og þrálátum hósta og kvefeinkennum.
Ungum börnum á fyrstu 6 mánuðum ævinnar er sérlega hætt við alvarlegum afleiðingum kíghósta, meðal annars slæmum hóstaköstum og öndunarstoppi og getur sjúkdómurinn verið þeim lífshættulegur.
Theodór Skúli Sigurðsson, sérfræðingur í gjörgæslulækningum barna, sagði í fréttum RÚV í síðustu viku að það væri átakanlegt að horfa upp á lítil börn fá kíghósta. Theodór stundaði sérnám í Svíþjóð þar sem upp komu alvarleg tilfelli kíghósta sem átti rekja til vanbólusetningar foreldra umræddra barna.
„Ég lenti í því að það voru allnokkur börn, ungabörn, sem komu inn með kíghósta og í öllum tilfellum höfðu þau sýkst af foreldrum. Þessi börn urðu öll mjög veik, alvarlega veik, þau lentu öll í öndunarvélum og því miður var eitt barn sem ekki lifði af þá sýkingu og það er náttúrulega algjör harmleikur,“ sagði hann.
Á vef Landlæknis kemur fram að bólusetning sé áhrifarík leið til að koma í veg fyrir sjúkdóminn hjá ungum börnum.
„Mikilvægt er að byrja að bólusetja ung börn því sjúkdómurinn er hættulegastur hjá börnum yngri en 6 mánaða. Hér á landi eru börn bólusett við 3, 5 og 12 mánaða aldur og endurbólusett við 4 og 14 ára aldur. Bóluefnið verndar ekki lengur en í um 10 ár og því er möguleiki á að smitast síðar á ævinni. Víða erlendis hefur verið mælt með reglubundinni endurbólusetningu fullorðinna en hér á landi er eingöngu mælt með reglubundinni endurbólusetningu heilbrigðisstarfsmanna. Bólusetning barnshafandi kvenna dregur verulega úr sjúkdómi hjá börnum á fyrsta ári, sérstaklega börnum undir 3ja mánaða aldri sem hafa ekki fengið bólusetningu sjálf. Frá árinu 2019 hefur öllum barnshafandi konum verið boðin bólusetning gegn kíghósta í mæðravernd.“