Þetta gerðist í Greve í Danmörku. TV2 segir að þegar mennirnir hafi orðið lögreglunnar varir hafi margir þeirra hlaupið á brott.
Þegar lögreglumennirnir komu nær staðnum sáu þeir að mennirnir höfðu staðið og horft á nakið par sem var í sólbaði. Virðast mennirnir hafa mætt á staðinn eftir að parið hóf að sóla sig og hafi þeir síðan byrjað að fróa sér. Virðist parið ekki hafa haft neitt á móti þessu.
Enginn var handtekinn vegna málsins en lögreglan bað mennina um að finna sér annan vettvang til að stunda sjálfsfróun.