Business Insider segir að venjulega séu eyrnalokkar af þessari gerð seldir á tæplega 14.000 dollara en það svarar til um 1,8 milljóna íslenskra króna.
Það er því kannski engin furða að Jasso hafi látið slag standa og pantað tvö pör.
En verðið var ekki rétt, mistök höfðu verið gerð og Cartier vildi ekki senda honum eyrnalokkana.
Jasso segist að nokkrum dögum eftir að hann pantaði eyrnalokkana hafi verið hringt í hann frá Cartier og honum sagt að pöntun hans hefði verið felld úr gildi. Hann var beðinn afsökunar og fyrirtækið bauðst til að senda honum kampavín og kortaveski. Hann afþakkað þetta pent.
Þess í stað las hann skilyrðin og annað af smáa letrinu á mexíkóskri heimasíðu Cartier og komst að því að fyrirtækið ráðleggur viðskiptavinum sínum að hafa samband við Umboðsmann neytenda í Mexíkó ef þeir eru í vandræðum með pantanir.
The New York Times segir að hann hafi sent kvörtun til umboðsmannsins og hafi vísað í neytendalöggjöfina í Mexíkó sem kveður á um að draga skuli seljanda fyrir dóm ef hann stendur ekki við þau skilyrði og reglur sem gilda um sölu á varningi.
Umboðsmaðurinn hafði samband við Cartier í því skyni að reyna að ná sáttum. Að lokum gaf fyrirtækið eftir og sendi Jasso eyrnalokkana hans.
Hann tók myndir af þessu og birti á samfélagsmiðlum og í kjölfarið myndaðist mikil umræða um svipuð mál og er ekki annað að sjá en það sé mun algengara en talið var að fyrirtæki breyti verði á vörum sínum, að minnsta kosti ef miða má við fjölda kvartana.
Lilly Téllez, þingmaður, blandaði sér í umræðuna og sakaði Jasso um að misnota Cartier og sagði að hann hefði ekki átt að gera þetta, jafnvel „þótt lögin séu þín megin“.
✨Once upon a December✨ pic.twitter.com/3wMvT7AjLw
— dre pute (@LordeDandy) April 26, 2024