Mörgum sögum fer um meint illindi milli Harry Bretaprins og bresku krúnunnar. Höllin hefur ekki formlega staðfest deilurnar en mörgum þykja skilaboðin þó vera skýr – Harry hefur verið útskúfað.
Miðlar erlendis telja óhjákvæmilegt að lesa annað úr því sem átti sér stað í dag. Harry er staddur í Bretlandi til að fagna 10 ára afmæli Invictus-leikanna, viðburð sem Harry kom á laggirnar fyrir hermenn sem urðu fyrir líkamstjóni við skyldustörf.
Afmælishátíðin fór fram í St. Paul kirkjunni. Þangað mætti Harry einn síns liðs í dag, en enginn úr fjölskyldu hans mætti til að sína stuðning sinn, enda voru þau vant við látin. Karl Bretakonungur hafði nefnilega slegið upp heljarinnar garðveislu í Buckingham höll sem fór fram á sama tíma og Invictus-fögnuðurinn.
Harry hafði áður sagt í opinberri yfirlýsingu að heimsókn hans til Bretlands væri til að fagna afmæli Invictus-leikanna og gerði hann ekki ráð fyrir að hitta föður sinn sem væri vant við látinn.
Á móti tilkynnti höllin að Vilhjálmur Bretaprins væri að taka við herdeildinni sem Harry fór áður fyrir – nokkuð sem margir túlka sem móðgun við Harry, sérstaklega að gera það núna.
Invictus-leikarnir höfðu áður fullan stuðning krúnunnar en nú hefur konungsfjölskyldan dregið formlegan stuðning sinn til baka. Heimildarmaður frá breskar hernum sagði í samtali við DailyBeast að mörgum þyki ósanngjarnt að Invictus-leikarnir, sem séu samtök með göfugt markmið, séu að verða á milli í þessum konunglegu deilum. Samtökin hafi verið stofnuð út frá þeirri forsendu að þau nytu konunglegs stuðnings. Því sé um ákveðinn forsendubrest fyrir starfseminni að ræða.
Ekki þykir heldur tilviljun að konungur hafi blásið til 5.000 manna garðveislu á einmitt þessum tíma. Þeir sem hlutu boð í veisluna þorðu ekki öðru en að láta sjá sig enda margir hikandi við að láta tengja sig við Harry af ótta við útskúfun.