Bóluefnið var þróað á sínum tíma af AstraZeneca í samvinnu við vísindamenn við Oxford háskólann.
The Telegraph skýrir frá þessu og segir að í tilkynningu frá fyrirtækinu komi fram að það hafi ekki skipt máli við þessa ákvörðun að bóluefnið getur í örfáum tilfellum valdið alvarlegum blóðtöppum. Það séu viðskiptalegir hagsmunir sem ráði þessu.
„Við erum ótrúlega stolt af því hlutverki sem Vaxzevira gegndi í að binda endi á heimsfaraldurinn. Óháð mat er að bóluefnið hafi bjargað rúmlega 6,5 milljónum mannslífa á fyrsta árinu sem það var í notkun. Rúmlega þrír milljarðar skammta hafa verið seldir á heimsvísu,“ segir í tilkynningu frá fyrirtækinu.
Framleiðslu bóluefnisins hefur verið hætt vegna lítillar eftirspurnar og vegna þess að fleiri bóluefni gegn kórónuveirunni eru nú aðgengileg.