Segir ráðuneytið að héraðsstjórinn í Zaporizhzhia hafi undirritað tilskipun um þetta í apríl og séu yfirvöld í héraðinu nú að undirbúa herkvaðningu.
Segir ráðuneytið að þetta sé einnig hluti af aðgerðum Rússa við að fá íbúana til að sætta sig við að Rússar ráði ríkjum.
Ráðuneytið segir einnig að tilraunir Rússar til að þvinga íbúa herteknu svæðanna til að fá sér rússnesk vegabréf, sé enn eitt dæmið um þá stefnu sem ráðamenn í Moskvu reka.
Að sögn ráðuneytisins þá mun herkvaðning á herteknu svæðunum ekki breyta miklu varðandi bardagagetu rússneska hersins því flestir úkraínskir karlmenn, sem eru á því sem kallað er bardagafærum aldri, hafi nú þegar yfirgefið svæðin.