Sjá einnig: Einar og Gestur hafa áhyggjur af eiginkonum sínum – Eins og martröð mánuðum saman
Einar og Gestur skrifuðu grein í Morgunblaðið í dag en eiginkonur þeirra glíma við heilabilun og hafa notið góðrar aðhlynningar og atlætis á Sóltúni. Bentu þeir á að nú séu blikur á lofti en gera áætlanir ráð fyrir að bæta eigi við 64 herbergjum við þau 92 sem fyrir eru.
Einari og Gesti lýst ekki á blikinu enda stendur til að gera þetta með íbúana í húsinu. Þetta sé ekki gott enda heilabilaðir sjúklinga sérstaklega næmir fyrir hávaða og ónæði, meðal annars vegna þess að þeir gera sér ekki grein fyrir orsökum og venjast ekki áreiti vegna minnisleysis.
Elín Hirst skrifar aðsenda grein sem birtist á vef Vísis þar sem hún viðrar sömu áhyggjur, en aldraður faðir hennar býr í Sóltúni. Segist hún óttast um velferð hans á komandi misserum.
„Nú í haust er ráðgert að stækka hjúkrunarheimilið Sóltún og bæta rúmlega 60 herbergjum við þau 92, sem fyrir eru á. Þetta á að gera með því að byggja nýja hæð ofan á húsið og lengja sumar álmurnar. Sá böggull fylgir hins vegar skammrifi, að íbúarnir sem eru bæði aldraðir og sjúkir, eiga að búa í húsinu á meðan á framkvæmdunum stendur. Meðal dvalartími sjúklinga í Sóltúni er 2 ár, sem er einmitt sá tími sem stækkun hússins mun taka,“ segir Elín í grein sinni.
Hún segir ljóst að byggingaframkvæmdir muni skapa mikla vanlíðan meðal íbúanna, vegna hávaða, ónæðis og mengunar sem þeim mun fylgja.
„Fæst okkar sem hraust erum höfum áhuga á því að búa í húsnæði sem er í smíðum hvað þá sjúklingarnir í Sóltúni sem eru afar viðkvæmur hópur sem er að ljúka sínu ævikvöldi. Síðustu ævidagarnir verða því afar nöturlegir við þessar aðstæður, svo ekki sé fastar að orði kveðið.“
Elín segir að hópur aðstandenda hafi nú tekið sig saman um að standa vörð um velferð íbúa Sóltúns og hafa leitað til yfirvalda með kröfu um að tafarlaust verði hætt við þessar „glórulausu“ framkvæmdir eins og hún orðar það.