En áður en blóðinu er makað á andlitið eru göt stungin á húðina með litlum nálum. Þetta er gert til þess að húðin geti drukkið blóðið í sig.
En nú liggur ljóst fyrir að þessi óvenjulega aðferð, sem varð mjög þekkt eftir að raunveruleikastjarnan Kim Kardashian fórnaði handlegg og andliti fyrir hana, getur ógnað heilsu fólks alvarlega.
Bandaríska smitsjúkdómastofnunin CDC segir í nýrri skýrslu að að minnst þrjár bandarískar konur hafi smitast af HIV eftir að hafa farið í „Vampíru andlitsmeðferð“ á sömu snyrtistofunni.
Þetta er í fyrsta sinn sem staðfest hefur verið að veira hafi borist með fegrunaraðgerð af þessu tagi.
CDC skýrir ekki frá nafni snyrtistofunnar en samkvæmt fréttum bandarískra fjölmiðla þá var leyfislausri snyrtistofu í Nýju Mexíkó lokað 2018 og að það sé stofan.
Vampírumeðferðin er andlitslyfting án þess að gripið sé til skurðaðgerðar. Aðferðin er sögð örva framleiðslu kollagens í húðinni en það endurnýjar húðina og vinnur gegn allt frá örum eftir bólur til tjóns af völdum sólarinnar.
En engar vísindalegar sannanir hafa komið fram um að meðferðin hafi þau áhrif sem hún er sögð hafa á öldrunarmerki.
CBS News segir að heilbrigðisyfirvöldum hafi verið bent á fyrrnefnda snyrtistofu og að þar gætu smit borist á milli með blóði. Meðal annars fannst ómerkt rör með blóði á eldhúsborði á snyrtistofunni.
Annað rör fannst geymt innan um mat í ísskáp.
CDC segir í skýrslunni að svo virðist sem tækjabúnaður, sem á að nota einu sinni, hafi verið notaður aftur og aftur, þar á meðal sprautur.