fbpx
Fimmtudagur 12.desember 2024
Fréttir

Snorri og Patrik vekja hneykslun: Konan hugsi um börnin og karlinn um peningana – „Gömlukallaraus í ungum mönnum“

Ritstjórn DV
Laugardaginn 27. apríl 2024 11:57

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Viðtal sem bræðurnir Snorri og Bergþór Másson tóku við tónlistarmanninn Patrik Atlason (Prettyboitjokko), í hlaðvarpi þeirra, Skoðanabræður, hefur vakið töluverða úlfúð eftir að mbl.is birti úrdrátt úr viðtalinu.

Í viðtalinu heldur Patrik því fram, og Snorri virðist taka undir með honum, að afkoma heimila væri miklu betri ef karlmenn myndu sjá um innkomuna en konurnar hugsuðu um heimilið og börnin.

„Þetta er það sem kapí­tal­ism­inn og þessi stóru fé­lög vilja gera, að kon­ur verði „career-dri­ven“, sem er bara allt í lagi. Ég held að maður­inn eigi að vera „career-dri­ven“ og leggja alla sína orku í það og hún á að vera „nurt­ur­ing“,“ sagði Pat­rik (endursögn mbl.is) og bæt­ir við að inn­koma heim­il­anna gæti verið helm­ingi meiri ef aðeins karlinn hugaði að frama og væri útivinnandi, en ekki konan.

„Ég held að þau vilji þetta því þau vilja hafa okk­ur bæði á hjól­un­um, en þá náum við styttra,“ sagði Pat­rik en hann útskýrði fyrr í þætt­in­um að sá sem ákvað að kon­an og karl­inn ættu bæði að vera á vinnu­markaði hafi ein­ung­is stefnt að því til að græða meira.

„Það er mjög áhuga­vert að menn hafi gabbað alla út á vinnu­markað og kallað það svo frels­is­bylt­ingu,“ sagði Snorri Másson. Snorri sagði ennfremur:

„Ég hugsa líka að all­ir karl­ar, óháð því að auðvitað eru bara bæði kyn­in frá­bær í allskon­ar störf­um og mjög góð í allskon­ar drasli, en all­ir karl­ar myndu vilja geta haldið uppi heim­ili sínu án þess að kon­an þyrfti að vinna. Að sjálf­sögðu myndu þeir vilja það.[…] Það er æðsta tak­mark“.

„Er þetta ekki eitthvað súrt grín“

Þetta spjall hefur vægast sagt fengið slæmar móttökur á samfélagsmiðlum. Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda, segist hafa vonast til þess að síðustu karlremburnar myndu deyja út með hans kynslóð. Hann segir á Facebook:

„Gömlukallaraus í ungum mönnum. Og ég sem vonaði að remburnar hyrfu með minni kynslóð. Einhvers staðar mistókst okkur herfilega.“

Miklar umræður skapast undir færslu Ólafs og margir lýsa sig hreinlega agndofa af undrun yfir þeim viðhorfum sem þeir félagar tjá. Svanhildur Konráðsdóttir, forstjóri Hörpu, spyr: „Er þetta ekki eitthvað súrt grín?“ – Illugi Jökulsson rithöfundur svarar henni alvarlegur í bragði að þetta sé alls ekki grín. „Þetta er raunverulegt“.

Egill Helgason fjölmiðlamaður segir: „Þeim finnst þetta líka í Saudi-Arabíu.“

Á samfélagsmiðlinum X, áður Twitter, minnir Valgerður Árnadóttir, varaþingmaður Pírata, á að konur víða um heim gjaldi fyrir með lífi sínu baráttu fyrir grundvallarmannréttindum:

„Konur víða um heim eru jafnvel drepnar fyrir að berjast fyrir frelsi til að fá að ráða yfir eigin líkama, mennta sig og vinna og svo eru einhv. forréttindaplebbar á Íslandi enn með miðaldarhugmyndir um kynjahlutverkin. Ef þetta er djók þá er það ekki einu sinni fyndið!“

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Henrietta segir foreldrajafnrétti stærsta jafnréttismálið – „Þetta misrétti hef ég upplifað á eigin skinni“

Henrietta segir foreldrajafnrétti stærsta jafnréttismálið – „Þetta misrétti hef ég upplifað á eigin skinni“
Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Tók meira en tvö ár að fá svör frá Reykjavíkurborg

Tók meira en tvö ár að fá svör frá Reykjavíkurborg
Fréttir
Í gær

Leita að einstaklingi í Tálknafirði sem hefur ekki náðst í um tíma

Leita að einstaklingi í Tálknafirði sem hefur ekki náðst í um tíma
Fréttir
Í gær

Læknar vara við því að vinsælar olíur geti verið að valda mikilli aukningu krabbameins í ungu fólki

Læknar vara við því að vinsælar olíur geti verið að valda mikilli aukningu krabbameins í ungu fólki
Fréttir
Í gær

Talaði Trump af sér?

Talaði Trump af sér?
Fréttir
Í gær

Pólski forsætisráðherrann segir að friðarviðræður hefjist hugsanlega í vetur

Pólski forsætisráðherrann segir að friðarviðræður hefjist hugsanlega í vetur