Hjónin Jón Jónsson tónlistarmaður og Hafdís Björk Jónsdóttir tannlæknir hafa sett einbýlishús sitt á Seltjarnarnesi á sölu.
Fasteignin er 231,5 fm á tveimur hæðum, þar af sérstæður 59 fm bílskúr. Húsið er byggt árið 1950 og ásett verð er 182 milljónir króna. Húsið stendur á 807 fm eignarlóð og er verönd í kringum húsið með skjólveggjum, heitum potti, góðri grillaðstöðu og markísu. Í garðinum er niðurgrafið trampólín og leiktæki, sér hellulagt körfubolta plan og geymslu/hjólaskúr við hlið bílskúrs.
Í bílskúr hefur verið innréttað fjölskyldurými með salerni og eldhúshorni, gott skápapláss, lítið mál væri að útbúa þar útleigurými eða unglingaherbergi.
Nánari upplýsingar um eignina má finna hér.