Í grein sinni skrifar Björn um vantrauststillögu Pírata og Flokks fólksins á ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar sem lögð var fram á dögunum en felld.
„Pólitískum spekúlöntum hefur fundist þessi vantrauststillaga voðalega hallærisleg þar sem það var augljóst að enginn stjórnarþingmaður myndi greiða atkvæði með vantrauststillögunni. Þetta er skiljanleg túlkun hjá þessum blessuðu spekúlöntum sem hafa alla jafna bara pælt í gömlu pólitíkinni. Þið vitið, klækjabrögðunum og útúrsnúningunum,“ segir hann.
Björn bætir við að tilgangurinn með vantrauststillögunni hafi ekki verið að reyna að láta reyna á einhverja stjórnarþingmenn sem voru stóryrtir út í embættisverk fyrrverandi matvælaráðherra standa við stóru orðin með því að greiða atkvæði með vantrausti. Þvert á móti hafi tilgangurinn verið að fá stjórnarþingmenn til að staðfesta að þau treysta forsætisráðherra.
„Hér þarf að hafa í huga að vantraustið er lagt fram ofan í undirskriftasöfnun fólks sem vantreystir forsætisráðherranum. Um 42 þúsund manns skrifuðu undir slíkt vantraust með rafrænt auðkenndum aðferðum – sem ég veit ekki hvort fólk áttar sig á hversu erfitt hefur verið að gera. Vantrauststillagan var því lögð fram sem tækifæri fyrir stjórnarþingmenn til að horfa í augun á kjósendum og segja, svo ég túlki þetta frjálslega: „Okkur er alveg sama hversu mörgum undirskriftum þið safnið, við treystum okkur sjálfum til góðra verka sama hvað þið segið. Við treystum Bjarna Benediktssyni svo mikið að við veljum hann sem forsætisráðherrann okkar.“
Björn segir að vissulega hefði verið áhugavert ef einhver stjórnarþingmaður hefði setið hjá eða greitt atkvæði með tillögunni en ekki hafi verið búist við því.
„Það var heldur ekki tilgangur tillögunnar. Það þurfti einfaldlega að skrá það í sögubækurnar, í skjöl þingsins sem verður hægt að vísa í um aldur og ævi, hverjum þessir stjórnarþingmenn treysta til verka. Fjármálaráðherra sem var að segja af sér vegna hagsmunaárekstra þegar hann seldi föður sínum hlut í ríkisbanka í lokuðu útboði og utanríkisráðherra sem réð fyrrverandi aðstoðarmann sinn til fjölmargra ára í stærsta embætti utanríkisþjónustunnar. Og það eru bara verk undanfarinna mánaða. Listi spillingarmála fyrri ára er mjög langur,“ segir Björn Leví og bætir svo við:
„Þess vegna segjum við Píratar að það sé ekki hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum. Spillingarmálin eru fyrirsjáanleg. Spekúlantar uppnefna þessa afstöðu okkar sem „upphlaupspólitík“ eða „útilokunarpólitík“ en frá okkar sjónarhorni er þetta einfaldlega ákvörðun byggð á gögnum. Við útilokum aldrei málefnalegar umræður, auðvitað ekki. En það er ábyrgðarhlutverk að greiða spillingunni leið í valdastóla. Um það snerist vantrauststillagan.“