En þetta var ekki það sem var grunsamlegast. Það grunsamlegasta við færsluna var aðilinn sem blandaði sér skyndilega í umræðuna um peningavandræði Bandaríkjamanna.
Þessi aðili heitir Karine Kimble en rannsókn Jótlandspóstsins á fyrrgreindri Facebooksíðu, sem hefur verið sögð fullkomið dæmi um aðgerðir kínverskra stjórnvalda á Internetinu, leiddi í ljós að þessi prófíll er líklega falskur.
Um leynilega herferð er að ræða en hægt er að rekja hana beint til fjölda falskra kínverskra prófíla. Herferðin nefnist „spamouflage“ og í október beindist hún að Justin Trudeau, forsætisráðherra Kanada, og fleiri kanadískum stjórnmálamönnum að sögn Reuters.
Í nóvember skýrði CNN frá því að fjöldi Bandaríkjamanna hefði orðið fyrir barðinu á umfangsmikilli falsupplýsingaherferð Kínverja en með henni var reynt að skapa ótta og taugaveiklun meðal þeirra sem teljast andstæðingar Kína í Bandaríkjunum.
Rússar gerðu svipaða hluti þegar kosningabaráttan fyrir forsetakosningar í Bandaríkjunum stóð sem hæst 2016. Þá var markmiðið að dreifa lygasögum til að skapa klofning í bandarísku samfélagi. Þetta eru Kínverjar að gera núna að sögn Elise Thomas, aðalgreinanda hjá Institute for Strategic Dialogue. New York Times skýrir frá þessu og hefur eftir Thomas að hún hafi aldrei áður séð neitt þessu líkt.
Tölvuöryggissérfræðingar komust fyrst á snoðir um hina leynilegu „spamouflageprogram, áætlun í þingkosningunum í Bandaríkjunum 2022. Tölvuöryggisfyrirtækið Mandiant segir að þá hafi Kínverjar reynt að valda óeiningu og klofningi í Bandaríkjunum með áætluninni „Dragonbridge“. En þetta var svo illa útfært hjá þeim að fáir féllu fyrir þessu. Max Lesser, tölvusérfræðingur, segir í skýrslu um „spamouflage“ að Kínverjar hafi lært af reynslunni og hann varar við aðgerðum þeirra og segir að þær séu orðnar svo umfangsmiklar að bandarísk yfirvöld ættu að stöðva þessar aðgerðir þeirra.