Parið hefur haldið sig til hlés frá sviðsljósinu undanfarna mánuði, sérstaklega Kleini sem hefur verið í pásu frá samfélagsmiðlum síðan í lok júlí í fyrra. Þau voru gestir í Fókus, spjallþætti DV, í febrúar og ræddu um pásuna, lífið og ný viðskiptaævintýri. Smelltu hér til að horfa á þáttinn. Þú getur einnig hlustað á Spotify.
Margir vita að Hafdís og Kleini eru með paratattú. Nokkrum mánuðum eftir að þau byrjuðu saman fengu þau sér skammstöfun hvors annars tattúveraða á sig ásamt áletruninni: „Love me, till I die“ eða „Elskaðu mig, þar til ég dey.“
Sjá einnig: Hafdís komin með skammstöfun Kleina á herðablaðið – „Elskaðu mig þar til ég dey“
En það sem flestir vita ekki er að þetta er ekki eina paratattú turtildúfnanna. Þau eru einnig með nafn hvors annars nálægt því allra heilagasta. Hafdís er með: „KLEINI“ á nárasvæðinu og Kleini er með: „Hafdís Björg“ fyrir ofan lífbeinið.
Fylgstu með Kleina hér og Hafdísi hér á Instagram. Þau eru einnig á TikTok.