fbpx
Laugardagur 27.júlí 2024
Pressan

Airbnb-húsið frá helvíti – Móðir og fjögur börn í stórhættu

Pressan
Þriðjudaginn 23. apríl 2024 04:05

Húsið hættulega. Mynd:Facebook/ Laura Schilling

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þegar Laura Schilling ákvað að panta hús til leigu í Lexington í Bandaríkjunum í gegnum Airbnb átti hún ekki von á öðru en að um gott hús væri að ræða og allt væri í himnalagi. Hún ætlaði að gista í húsinu ásamt móður sinni, dóttur sinni og þremur vinkonum hennar. Þær hefðu ekki í sínum villtustu draumum getað séð fyrir sér hversu hversu skelfileg ferðin yrði.

Schilling skýrði frá ferðinni í færslu á Facebook. Hún segir að um leið og þær komu að húsinu hafi eitthvað virst undarlegt við það. Fyrir það fyrsta hafi útidyrnar staðið „galopnar“.

„Það var mjög óþægilegt að ganga upp að húsi sem útidyrnar stóðu opnar á um miðja nótt,“ skrifaði hún og bætti við: „Ég gekk inn og vissi að þetta var rétta húsið en var enn hrædd um að einhver væri i húsinu.“

Hún sagðist strax hafa skoðað vel bak við allar dyr, inn í skápum og undir rúmunum til að ganga úr skugga um að enginn væri í húsinu. Það var ekki fyrr en að því loknu sem hún leyfði dóttur sinni og vinkonum hennar að koma inn. Síðan fór hún yfir alla glugga  til að tryggja að þeir væru „lokaðir og læstir“.

En áhyggjur þeirra jukust bara daginn eftir því þá komust þær að því að einhver hafði verið inni í húsinu. Þetta var ljóst því dyrnar voru ólæstar.

Schilling taldi að húseigandinn hefði komið við og „hugsaði því ekki svo mikið út í þetta“.

En staðan átti eftir að versna enn frekar.

Þegar þær komu í húsið eftir að hafa farið á veitingastað sáu þær að gluggi í einu svefnherberginu var opinn en þær höfðu skilið hann eftir lokaðan.

Þær skoðuðu því gluggana í öllum svefnherbergjunum og sáu að þeir höfðu „allir verið opnaðir“.

Þegar Schilling skoðaði fyrsta gluggann aftur sá hún að búið var að fjarlægja rimlana sem áttu að vera fyrir honum og þegar hún opnaði gluggann upp á gátt sá hún bíl, með skyggðar rúður, hinum megin við götuna. Var hann gangsettur um leið og hún kíkti út um gluggann og ekið á brott.

Hún hringdi strax í neyðarlínuna og kom lögreglumaður á vettvang og krafðist þess að þær myndu „yfirgefa húsið“ og lýsti yfir áhyggjum sínum af að þær væru „í hættu“.

En af hverju hafði hann áhyggjur? Schilling fékk einnig svar við því. „Lögreglumaðurinn taldi að hér væri um svikastarfsemi að ræða og að ætlunin hafi verið að ræna stúlkunum um kvöldið. Þetta hefði getað allt öðruvísi hjá okkur. Við hefðum getað vaknað næsta morgun og ég vil ekki einu sinni hugsa út í hvernig lífið gæti þá hafa litið út,“ skrifaði hún.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 5 dögum

Ævintýraferðin breyttist í martröð – Hjónin fundust látin í björgunarbát sex vikum síðar

Ævintýraferðin breyttist í martröð – Hjónin fundust látin í björgunarbát sex vikum síðar
Pressan
Fyrir 6 dögum

Sakamál: Hryllingur í smábæ – Dóttirin stumraði yfir líki móður sinnar

Sakamál: Hryllingur í smábæ – Dóttirin stumraði yfir líki móður sinnar
Pressan
Fyrir 1 viku

Einn eftirlýstasti strokufangi Bandaríkjanna sigldi undir fölsku flaggi í 30 ár

Einn eftirlýstasti strokufangi Bandaríkjanna sigldi undir fölsku flaggi í 30 ár
Pressan
Fyrir 1 viku

Árásarmaðurinn ætlaði sér ekki að deyja

Árásarmaðurinn ætlaði sér ekki að deyja
Pressan
Fyrir 1 viku

Loftslagsbreytingar hafa áhrif á tímann samkvæmt nýrri rannsókn – „Þetta er vitnisburður um alvarleika loftslagsbreytinga“

Loftslagsbreytingar hafa áhrif á tímann samkvæmt nýrri rannsókn – „Þetta er vitnisburður um alvarleika loftslagsbreytinga“
Pressan
Fyrir 1 viku

Ökumaður Teslubifreiðar lenti í árekstri og missti stjórn á bílnum í kjölfarið – Sjáðu magnað myndband

Ökumaður Teslubifreiðar lenti í árekstri og missti stjórn á bílnum í kjölfarið – Sjáðu magnað myndband
Pressan
Fyrir 1 viku

600 ára gamall texti líkist vel þekktum texta frá síðari tímum

600 ára gamall texti líkist vel þekktum texta frá síðari tímum
Pressan
Fyrir 1 viku

Er leitinni að Plánetu níu að ljúka?

Er leitinni að Plánetu níu að ljúka?