Live Science segir að í nýrri rannsókn komi fram að skýringin á þessum mikla snúningshraða geti einfaldlega verið sjónblekking vegna „sjóðandi yfirborðs“ stjörnunnar.
Betelgás er risastór, deyjandi stjarna. Hún er um 1.000 sinnum massífari en sólin okkar og er ein stærsta þekkta stjarnan í alheiminum. Til að setja þetta í samhengi getum við ímyndað okkur að við skiptum á Betelgás og sólinni og setjum stjörnurnar á stað hinnar. Betelgás er svo stór að hún myndi ná út fyrir braut Júpíters um sólina og þar með gleypa Júpíter, jörðina, Mars, Merkúr og Venus.
Þessi mikla stærð gerir að verkum að Betelgás er ein bjartasta stjarnan á næturhimninum og það er auðveldlega hægt að sjá hana með berum augum þar sem hún er í stjörnumerkinu Óríon.
Betelgás er aðeins um 10 milljón ára gömul og er því á barnsaldri miðað við stjörnur á borð við sólina sem er rúmlega 4,6 milljarða ára gömul.
En þrátt fyrir ungan aldur er Betelgás á lokametrum lífsins. Hún hefur brennt mestu af vetnisbirgðum sínu því hún er svo miklu massífari og heitari en aðrar stjörnur.
Þegar hún verður að lokum eldsneytislaus, sem gæti gerst á næstu árþúsundum eða jafnvel á æviskeiði þeirra sem lesta þetta árið 2024, mun hún springa og skína jafn skært og fullt tungl á himninum vikum saman.