Live Science segir að hluti San Andreas misgengisins, þar sem jarðskjálftar verða reglulega, geti hugsanlega gefið ákveðið merki frá sér áður en jarðskjálftar ríða yfir. Merkið gefur vísbendingu um opnun og lokun sprungna undir yfirborðinu.
Þessi hluti misgengisins, sem er þekktur sem Parkfield í miðhluta Kaliforníu, hristist yfirleitt á um 22 ára fresti. Síðast gerðist það 2004 svo það er ekki svo langt í næsta skjálfta ef misgengið heldur sig við rútínuna.
En núna ber svo við að fyrrgreint merki hefur ekki gert vart við sig á þessu svæði misgengisins og svæðið hegðar sér ekki nákvæmlega eins og það gerði síðast þegar skjálfti varð á því.
Þetta kemur fram í nýrri rannsókn sem hefur verið birt í vísindaritinu Frontiers in Earth Science. Í rannsókninni kemur fram að þetta geti þýtt að næsti skjálfti muni láta bíða eftir sér eða að upptök hans verði ekki á sama stað og 2004 en þá voru þau rétt suðaustan við bæinn Parkfield. Höfundar rannsóknarinnar benda á að engin leið sé að vita þetta fyrr en næsti skjálfti ríður yfir.
San Andreas misgengið markar skilin á milli Kyrrahafsflekans og Norður-Ameríkuflekans. Sunnan við Parkfield er misgengið læst sem þýðir að flekarnir nuddast ekki saman. Norðan við Parkfield hreyfist misgengið og flekarnir fær sig nær hvor öðrum um 3,6 cm á ári.