fbpx
Laugardagur 31.ágúst 2024
Pressan

Þessi vinsæli drykkur er verri en kaffi þegar kemur að því að valda andvöku

Pressan
Miðvikudaginn 17. apríl 2024 07:00

Skyldi hún hafa fengið sér mjólkurglas fyrir háttinn?

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Flestir hafa eflaust heyrt, eða reynt á eigin skinni, að það sé ekki gott að drekka kaffi skömmu áður en gengið er til náða því það örvi mann svo mikið og geti þannig komið í veg fyrir að maður sofni. En það er annar drykkur sem er enn verri að þessu leyti samkvæmt niðurstöðum nýrrar rannsóknar.

Daily Star skýrir frá þessu og segir að niðurstöður nýrrar rannsóknar sýni að mjólkurdrykkja sé allt annað en góð áður en gengið er til náða. Þetta er eflaust þvert á það sem margir halda enda oft talað um að gott sé að fá sér mjólkurglas eða flóaða mjólk til að bæta nætursvefninn.

En í rannsókninni kom í ljós að þegar þátttakendurnir drukku mjólk fyrir svefninn þá sváfu þeir aðeins í sex klukkustundir og 52 mínútur, eða tæplega klukkustund skemur en venjulega.

Þátttakendurnir drukku ýmsa drykki og voru þeim gefin stig byggð á ýmsum þáttum, til dæmis hversu lengi þátttakendurnir sváfu, REM svefni, léttum svefni og djúpum svefni.

Þegar þátttakendurnir drukku kaffi, sváfu þeir í sjö klukkustundir og 10 mínútur og meðal andvökutíminn yfir nóttina var 54 mínútur. En hins vegar náðu þeir aðeins 63 mínútna djúpsvefni og var það stysti djúpsvefnstíminn sem náðist.

Te kom best út en tedrykkja tryggði 74 mínútna djúpsvefn þrátt fyrir að te innihaldi koffín. Að mati þátttakenda þá voru svefngæðin 80/100 eftir tedrykkju.

Heitt súkkulaði er annar drykkur sem kom vel út fyrir nætursvefninn en það var í öðru sæti. Þátttakendurnir sváfu í sjö klukkustundir og 48 mínútur eftir að hafa drukkið heitt súkkulaði.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Sat látin við skrifborðið sitt í nokkra daga og enginn tók eftir því

Sat látin við skrifborðið sitt í nokkra daga og enginn tók eftir því
Pressan
Í gær

Fyrrum forstjóri Netflix hvetur fólk til að vinna ekki svona mikið

Fyrrum forstjóri Netflix hvetur fólk til að vinna ekki svona mikið
Pressan
Fyrir 2 dögum

Lík hans fannst í helli árið 1977 – Nú er loksins búið að bera kennsl á hann

Lík hans fannst í helli árið 1977 – Nú er loksins búið að bera kennsl á hann
Pressan
Fyrir 2 dögum

Ellilífeyrisþegi lét innbrotsþjófinn finna hvar Davíð keypti ölið

Ellilífeyrisþegi lét innbrotsþjófinn finna hvar Davíð keypti ölið
Pressan
Fyrir 3 dögum

Deadpool-morðinginn dæmdur til dauða: „Ég hef aldrei séð neinn jafn illan og hann“

Deadpool-morðinginn dæmdur til dauða: „Ég hef aldrei séð neinn jafn illan og hann“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Fara fram á dauðadóm yfir þremur Bandaríkjamönnum

Fara fram á dauðadóm yfir þremur Bandaríkjamönnum
Pressan
Fyrir 4 dögum

Meiri líkur á bílveiki þegar ekið er í rafbíl

Meiri líkur á bílveiki þegar ekið er í rafbíl
Pressan
Fyrir 4 dögum

Hún vinnur við að fjarlægja skapahár en eitt neitar hún að gera

Hún vinnur við að fjarlægja skapahár en eitt neitar hún að gera