Ástralski arkitektinn Bianca Censori, sem er hvað þekktust fyrir að vera eiginkona Kanye West, heldur áfram að vekja athygli fyrir klæðaval sitt.
Það mætti hugsanlega segja að í þetta sinn hafi hún klæðst djarfasta klæðnaðinum til þessa. Hún hefur áður verið nakin undir gegnsæjum regnjakka en í þetta sinn gekk hún skrefinu lengra og var nakin undir gegnsæjum hlýralausum kjól sem fjölmiðlar vestanhafs líkja við smokk.
Kanye west and Bianca censori last night in LA pic.twitter.com/N8pmSQ5IsV
— Gbolahan (@Gbollyboy_) April 9, 2024
Kaye west and Bianca censori has done it again 😂🔥 pic.twitter.com/McyP431DJS
— ye Yeezy (@HappyVicto48485) April 9, 2024
Bianca Censori and hubby Ye spotted last night. #kanyewest #Kanye #BiancaCensori #YZY #yeezy pic.twitter.com/vOUJ1hJxuC
— Style Monument (@stylemonument) April 9, 2024
Það er ekkert nýtt fyrir ástralska arkitektinn að hneyksla. Í lok febrúar mætti hún buxnalaus á tískusýningu og fyrr í febrúar mætti hún nánast nakin í Super Bowl partý.
Sjá einnig: Bianca Censori buxnalaus vekur athygli – Svona klæðir hún sig í kringum börn Kanye West
Sjá einnig: Foreldrar Biöncu í uppnámi og óttast að Kanye West hafi fullkomna stjórn á henni
Bianca er ástralskur arkitekt og byrjaði að starfa fyrir fyrirtæki Kanye, Yeezy, árið 2020. Þau hafa verið saman síðan byrjun árs 2023 og eru sögð hafa gifst við leynilega athöfn um miðjan janúar.
Í september sögðust vinkonur hennar hafa miklar áhyggjur af henni og að Kanye væri að „reyna að breyta henni í róttækari útgáfu af fyrrverandi eiginkonu hans, Kim Kardashian.“
Sjá einnig: Vinkonur eiginkonu Kanye West hafa miklar áhyggjur af hegðun hennar – „Hún er ekki svona“
Fatastíll og útlit hennar hefur tekið rosalegum breytingum eftir að hún kynntist rapparanum en það er þekkt að Kanye hafi áhrif á klæðaburð eiginkvenna sinna og kærasta.
Í fyrrasumar voru Bianca og Kanye á ferð um Ítalíu og vakti klæðaburður hennar mikla athygli og talsverða reiði. Fjölmargir kölluðu eftir því að Bianca yrði handtekin fyrir að særa blygðunarsemi en hún klæddist litlu öðru en gegnsæjum sokkabuxum og litlum toppum. Eitt kvöldið gekk hún um með púða í stað þess að vera í bol.
Þau voru einnig sett í lífstíðarbann eftir ósæmilegt atvik á bát.
Sjá einnig: Heldur áfram að hneyksla á Ítalíu – Svona var fatastíllinn áður en hún giftist Kanye