fbpx
Sunnudagur 15.desember 2024
Fókus

„Ég gleymi aldrei síðasta símtalinu okkar því stuttu seinna hengdi hún sig inni á Vogi. Þennan dag breyttist allt“

Fókus
Mánudaginn 8. apríl 2024 08:17

Jói Dagur.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jóhann Dagur Þorleifsson eða Jói Dagur eins og hann er kallaður er 35 ára af Skaganum í grunninn en eins og hann segir sjálfur þá er hann í raun alls staðar að. Hann er nýjasti gestur hlaðvarpsins Sterk saman. Hann á stóra sögu sem byrjaði snemma ef horft er til baka. Fyrsta fíknin var nammi.

„Ég man að ég fékk pening fyrir nammi, fór út í sjoppu og keypti fyrir allan peninginn og kláraði það en fannst það ekki nóg svo ég bað mömmu og pabba um meiri pening. Þau sögðu nei. Ég tók málin í mínar hendur og fór út í sjoppu með lítinn vasahníf og hræddi einn strák til að láta mig fá sinn nammipening. Ég var aldrei að fara að stinga neinn en þurfti meira.“

Hann bætir við að þegar hann kom heim, sáttur með nammið sitt tók mamma hans á móti honum og sagði: „Komdu með hnífinn.“ Þá hafði pabbi stráksins hringt í foreldra mína.

Lenti í alvarlegu bílslysi

Þegar Jói var sjö ára gamall lenti hann í alvarlegu bílslysi þar sem hann fékk glerbrot lengst inn í heilann og hlaut þar mikinn heilaskaða og missti málið ásamt öðru. Í þessu slysi lést frænka hans sem sat við hlið hans. „Ég man að ég reyndi að segja eitthvað þarna en ég gat það ekki, ég vissi bara ekki af hverju. Ég fór í stóra heilaskurðaðgerð og var í dái eftir það. Læknarnir voru búnir að úrskurða mig grænmeti og búnir að segja mömmu minni það en svo allt í einu vaknaði ég bara.“

Hann missti minnið einnig við skaðann.

„Það er ótrúlega erfitt að vera sjö ára og muna ekkert og kunna allt í einu ekki að tjá sig en eftir þetta var ég líklega líka erfiður.“

Himnarnir opnuðust þegar hann reykti hass

Skólaganga Jóa gekk vel, þegar hann nennti og minnist hann þess að hafa verið spurður um uppáhalds tíma í skólanum og svarað því til að það væru frímínútur. Hann fann sig best í verklegum fögum en stóð sig vel þar sem hann lagði sig fram.

Eftir slysið flutti fjölskyldan mikið og upplifði hann mikið rótleysi en segir hann það ekki hafa komið að sök á endanum því hann eigi auðvelt með að nálgast fólk og eignast vini.

„Ég hef líklega verið í öllum flokkum eða hópum krakka. Þessum venjulegu, strítt öðrum og verið strítt.“

Jói byrjaði að reykja sígarettur aðeins tíu ára gamall en fór að fikta við hassreykingar á unglingsárunum. „Himnarnir opnuðust upp á gátt þegar ég reykti hass en ég varð ekkert ofurseldur strax enda bjó ég mikið úti á landi og aðgengi ekki mikið fyrir unga krakka. Ég nýtti öll tækifæri sem ég fékk samt.“

Örlagarík strætóferð

Það var í framhaldsskóla sem drykkjan kom inn en þá voru allir að drekka. Hann missti strax tökin á drykkjunni og skildi ekki af hverju djamm þyrfti að einskorðast við helgar. „Vinir mínir sögðu við mig að það væri ekki eðlilegt að drekka á virkum dögum en ég var ekki sammála. Ég fór í FB og klúðraði því auðvitað, enda var ég bara að djamma.“

Hann segir frá atviki sem átti sér stað í strætó þegar hann var unglingur: „Ég sat í strætó og það settist fullorðinn maður við hliðina á mér og spurði hvort ég væri með pening og hvort ég vildi kaupa Rítalín og Rivotril. Ég sagðist vera með eitthvað og spurði hvað það kostaði og hann sagði að þetta væri akkúrat nóg fyrir tveimur rivo. Svo fékk ég símanúmerið hans og tók svo þessi lyf. Þetta var alveg nýtt dóp fyrir mér og mjög spennandi.“

Neyslan jókst og breyttist eftir tímabilum, Jói var í hljómsveitum sem voru vinsælar og náði hann alltaf að sinna því, enda hans ástríða.

21 árs gamall breyttist margt en þá var hann með tveimur vinum sínum, sem báðir eru látnir í dag. Þeir notuðu vímuefni í æð og Jói sá að þeirra víma væri miklu meiri en hans. „Ég hafði alltaf sagt að ég myndi aldrei sprauta mig, ég leit niður á það en þarna setti ég samasemmerki milli þess að því meiri víma því betra líf og ákvað að sprauta mig í fyrsta skipti, þá opnuðust himnarnir.“

Jói fór seint í sína fyrstu innlögn á Vog miðað við neyslusögu. Hann taldi sig þó ekki þurfa frekari meðferð en efldist mikið við það hversu ánægt fólk var með hann þegar hann kom út. Honum fannst frekar ýkt að þurfa að hætta að lifa lífinu, eins og hann sá það, þó hann væri orðinn edrú svo hann fór að selja fíkniefni, mæta í partý og á djammið auk þess að dæla í sig sterum.

„Ég var spíttsalinn í Adidasgallanum á Prikinu og það dugði í tvö og hálft ár. Eftir tvö ár var ég orðinn eitthvað pirraður svo vinur minn stakk upp á því að ég kæmi með honum á fund, sem ég gerði. Þar elskaði ég að hlusta á neyslusögur og kíkja á stelpurnar.“

Eftir smá tíma í samtökunum var hann kominn í samband með stelpu þar og þau fluttu inn saman og trúlofuðu sig og duttu svo í það.

„Eins og neyslusambönd eru þá drógum við það versta fram í hvort öðru og svo endaði það. Ég gleymi því aldrei síðasta símtalinu okkar því stuttu seinna hengdi hún sig inni á Vogi. Þennan dag breyttist allt.“

Kóngurinn í kompunni

Þegar allt var farið úr böndunum bjó Jói í 10 fermetra kompu en leið eins og hann væri kóngurinn í kompunni því hann hafði tekið það í sátt að þetta væri það líf sem honum væri ætlað. „Ég var búinn að reyna oft, fara hring eftir hring í meðferð en féll alltaf strax svo ég var búinn að taka þetta líf í sátt. Á meðan ég bjó í þessari kompu var ég samt í hljómsveit sem spilaði tvisvar á Secret solstice og Airwaves.“

Það var á seinni Secret solstice hátíðinni sem hann sprautaði sig í síðasta skipti en hann hafði verið að velta því fyrir sér hvort hann ætti eitthvað betra skilið í þessu lífi. „Ég var inni á VIP klósettinu á Solstice að sprauta mig og sá mig í spegli á meðan þegar ég hugsa bara nei, er þetta það sem ég vil gera? Ég tók nálina úr hendinni á mér og hætti að sprauta mig.“

Aðspurður hvað hafi orðið til þess að hann hafi ákveðið að fara aftur í meðferð og verða edrú segist hann hafa farið að hugsa: „Hvað ef allt þetta sem allir hafa verið að segja er satt og ég er búinn að hafa rangt fyrir mér?“ Hann hafði hringt á Vog og lagt inn beiðni í innlögn en biðin voru sex mánuðir svo við tók sex mánaða lokadjamm sem var auðvitað ekki djamm heldur sukk. Á miðju skralli, með tveimur vinum sínum, sem báðir eru látnir í dag, kom hringingin frá Vogi svo.

„Ég og vinur minn vorum uppi í stúdíói að rúlla jónu þegar við fundum fentanyl plástur og fannst við heldur betur hafa dottið í lukkupottinn. Hann fékk sér smók og fór svo út að reykja, þegar hann kom inn var ég í öndunarstoppi. Hann reynir að vekja mig með köldu vatni, hnoðar og blæs en ekkert virkar en i örvæntingu kveikir hann í servíettu og brennir á mér höndina og ég vakna eftir 40 mínútur. Þetta hefði ég ekki átt að lifa af en með annars og þriðja stigs bruna á höndinni var það fyrsta sem ég gerði var að fá mér aftur.“

Jói fór í meðferð þegar hann fékk símtalið, var að vísu búinn að gleyma að hann ætti beiðni en ákvað að fara og gera hlutina öðruvísi en öll hin skiptin.

Hlustaðu á þáttinn hér að neðan.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Gullni piparsveinninn með ólæknandi krabbamein

Gullni piparsveinninn með ólæknandi krabbamein
Fókus
Fyrir 2 dögum

Gunnar Smári eldaði hamborgarhrygg úr glöðum grís

Gunnar Smári eldaði hamborgarhrygg úr glöðum grís
Fókus
Fyrir 3 dögum

Erna Hrönn tókst á við geranda sinn fyrir dómstólum og tapaði -Veit í hjarta sínu hvar skömmin á heima

Erna Hrönn tókst á við geranda sinn fyrir dómstólum og tapaði -Veit í hjarta sínu hvar skömmin á heima
Fókus
Fyrir 3 dögum

Fór að gráta eftir að hafa stundað kynlíf með 100 karlmönnum

Fór að gráta eftir að hafa stundað kynlíf með 100 karlmönnum
Fókus
Fyrir 4 dögum

Hulin ráðgáta hvenær Jay-Z og Beyoncé byrjuðu saman – Var upphafið óviðeigandi?

Hulin ráðgáta hvenær Jay-Z og Beyoncé byrjuðu saman – Var upphafið óviðeigandi?
Fókus
Fyrir 4 dögum

Dóri DNA selur glæsilega íbúð í Skerjafirðinum

Dóri DNA selur glæsilega íbúð í Skerjafirðinum