Frá og með deginum í gær hefur Reykjavíkurborg stytt opnunartíma sundlauga sveitarfélagsins um klukkustund. Það þýðir að sundlaugunum er lokað frá kl.21 um helgar . Markmið borgarinnar er að spara fjármuni með þessari aðgerð, einhverjar 20 milljónir króna á ársgrundvelli, en margir foreldrar eru á þeirri skoðun að þar sé verið að spara aurinn en kosta krónunni. Sundferðir séu einfaldlega mikilvægt lýðheilsumál og sérstaklega fyrir unglinga á höfuðborgarsvæðinu.
Bryndís Ísaföld Hlöðversdóttir, stjórnmálafræðingur og ráðgjafi, er ein þeirra sem hefur tjáð sig með gagnrýnum hætti um þessa ákvörðun borgarinnar. Segir hún að hana skjóta skökku við í ljósi eftirspurnarinnar eftir sundferðum. Ekki sé ekki langt síðan að opið var um kl.23 um helgar og þá hafi tilraun með miðnæturopnun verið slegin af því vinsældirnar hafi einfaldlega verið of miklar.
„Verandi foreldri unglinga og ungmenna þá hefði ég haldið að tilvalið sé að hafa opið sem lengst, helst til miðnættis um helgar. Þarna eru ungmennin í skjálausri og vímuefnalausri samveru, sem kemur í stað sjoppu- og símahangs. Og ekki bara það heldur verða ferðir í sund brátt vottaðar sem hluti menningaarfi Íslendinga ef UNESCO samþykkir tillögu ráðherra menningamála.
Af hverju að reka þjóðlega, skjálausa og vímulausa æsku upp úr sundi þegar hún getur chillað í lauginni með öruggar rúsínufingur og rúsínutásur frameftir kvöldi? Er ég ein um að skilja ekki þessa ákvörðun?,“ skrifar Bryndís.
Guðmundur Jörundsson, fatahönnuður, er á sömu skoðun og Brynhildur og skilur ekkert í ákvörðun borgarinnar.
„Unglinga vantar staði til að vera á, held þeir verði ekki mikið betri en sundlaugar. Enginn skjár bara tengsl, vatn & útivera. Þætti nær að lengja opnun sundlauga til 23. Það besta sem þetta land á fyrir andlega og líkamlegu heilsu eru allar þessar sundlaugar okkar,“ skrifar Guðmundur og bendir svo á hversu lág upphæð sparast.
„20 mkr sparast á ári við skerðinguna. Síðastliðið ár syntu 1,8 milljón gesta. Það myndi gera 11 kr. per gest að brúa þessar 20 milljónir króna,“ skrifar Guðmundur og leggur til að aðgangseyririnn verði frekar hækkaður um 20 krónur í hvert skipti til að hafa borð fyrir báru. „Myndu ekki allir frekar velja þann kost?,“ skrifar Guðmundur.
Reykjavíkurborg var að skerða kvöldopnunartíma sundlauga bókstaflega í gær. Opið til 21 í stað 22 um helgar. Sem dæmi er Vesturbæjarlaug full af unglingahópum flest kvöld vikunnar og alveg sérstaklega á kvöldin um helgar sem nú er búið að skerða.
1/2 pic.twitter.com/8zvKhy4VZG
— Guðmundur Jörundsson (@gudmundur_jor) April 2, 2024