fbpx
Þriðjudagur 16.júlí 2024
Pressan

Skoða hvort megrunarlyfin Ozempic og Wegovy tengist 20 dauðsföllum í Bretlandi

Pressan
Föstudaginn 5. apríl 2024 20:00

Trish og Roy Webster. Trish er talin hafa látist af völdum megrunarlyfsins Ozempic á síðasta ári.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Megrunarlyfin Ozempic og Wegovy, sem í grunninn eru sykursýkislyf, eru sögð tengjast 20 dauðsföllum í Bretlandi sem tilkynnt hafa verið til bresku lyfjaeftirlitsstofnunnar. Þetta kemur fram í umfjöllun Daily Mail fyrr í dag en þar kemur fram að á þessu stigi málsins séu eingöngu grunsemdir til staðar en ekki hafi verið sýnt fram á bein tengsl milli lyfjanotkunarinnar og dauðsfallanna, sem öll áttu sér stað eftir 2019.

Ýmsar aukaverkanir fylgja inntöku lyfjanna

Megrunarlyfin tvö hafa notið gríðarlegra vinsælda í hinum vestræna heimi og hafa þau hjálpað fjölda fólks að léttast. Efnið í lyfjunum, sem gerir fólki kleift að léttast, heitir semaglutide og það stuðlar að því að líkaminn framleiðir hormón sem lætur fólk upplifa seddutilfinningu auk þess sem það hægir á meltingu fæðu.

Þeir sem nota lyfin upplifa sumir margskonar aukaverkanir. Þær algengustu eru ógleði, uppköst, niðurgang, hægðatregðu, þreytu, magaverki, höfuðverk og svimi.

Eins og áður segir hafa tuttugu dauðsföll verið tilkynnt til bresku lyfjaeftirlitsstofnunnarinnar, MHRA, þar sem grunur leikur á um að áðurnefnd megrunarlyf beri ábyrgð. Opinber dánarorsök þessara sjúklinga var ekki gefin upp í átta tilvikum en fjórir sjúklingar voru sagðir hafa dáið úr hjartaáfalli en aðrir úr ofskammti, krabbameini, efnaskiptasjúkdómi og sjálfsvígi.

Lést 56 ára gömul

Í umfjöllun breska miðilsins er rifjað upp andlát 56 ára móður frá Ástralíu, Trish Webster, sem grunur leikur á að hafi látist af heiftarlegum aukaverkunum við að taka lyfið Ozempic inn. Trish fékk lyfinu  ávísað frá lækni þar sem hún vildi komast í ákveðinn kjól fyrir brúðkaup dóttur sinnar. Samhliða því fékk hún lyfið Saxenda og virtust lyfin hafa góða virkni þar sem Trish hafði lést um 16 kíló á fimm mánuðum.

Í janúar 2023, nokkru fyrir brúðkaupið, kom eiginmaður Trish að henni þar sem hún lá meðvitundarlaus á gólfi heimilis þeirra og lak brúnn vökvi út um munn hennar.  Trish var flutt á sjúkrahús í kjölfarið þar sem hún var úrskurðuð látinn stuttu síðar. Í ljós kom að hún þjáðist af iðrabólgu og leikur grunur á að megfrunarlyfið vinsæla hafi átt þátt í dauða hennar.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 5 dögum

Ítalskur bær neyðist til að vísa ferðamönnum á brott vegna vatnsskorts

Ítalskur bær neyðist til að vísa ferðamönnum á brott vegna vatnsskorts
Pressan
Fyrir 5 dögum

Sjö ávanar sem gera tannlækninn þinn ríkan

Sjö ávanar sem gera tannlækninn þinn ríkan
Pressan
Fyrir 5 dögum

Prestur barði eiginkonu sína fyrir að vera heppin

Prestur barði eiginkonu sína fyrir að vera heppin
Pressan
Fyrir 6 dögum

„Gerist bara einu sinni á ævinni“ – Einstakt tækifæri til að sjá sprengingu á dvergstjörnu

„Gerist bara einu sinni á ævinni“ – Einstakt tækifæri til að sjá sprengingu á dvergstjörnu