Kynþokkafull undirföt – Skemmtilegar og öðruvísi gjafir
Verslunin TANTRA var stofnuð haustið 2002 og hefur starfað óslitið síðan auk þess sem netverslun fyrirtækisins fór í fullan gang ári síðar. Frá upphafi hefur verið lögð áhersla á vandað og fjölbreytt vöruúrval. „Við bjóðum upp á gott vöruverð og frábæra þjónustu faglegs starfsfólks sem hefur þekkingu á vörunum sem við seljum,“ segir Árni Jónsson, eigandi og framkvæmdastjóri Tantra.
„Í verslun okkar er að finna eitt mesta úrval landsins af hágæða hjálpartækjum fyrir bæði kynin en þar má nefna merki eins og We-Vibe, Svakom og það allra nýjasta; Womanizer. Einnig er Tantra með umboð fyrir ID-sleipiefnunum sem eru ein þau allra bestu á markaðnum í dag. Verslunin er alltaf stútfull af spennandi vörum og hér er einnig að finna gott úrval af BDSM-vörum, auk þess sem við erum líka með gott úrval af kynþokkafullum undirfötum,“ vekur Árni athygli á.
„Við hvetjum ykkur til þess að líta við hjá okkur í Tantra fyrir konudaginn, sem er á sunnudaginn, en við munum vera með opið frá kl. 12–18 þann dag, og finna skemmtilega og öðruvísi gjöf í tilefni dagsins.“
Á heimsíðunni www.tantra.is er afar gott yfirilt yfir vöruúrval verslunarinnar. Einnig er hægt að versla vörur í gegnum netverslun Tantra og fá vörurnar sendar með Póstinum heim að dyrum.
Vert að benda á facebook síðu Tantra, en þar koma reglulega inn upplýsingar um nýjar vörur og helstu tilboð
Hlíðasmára 13, sími: 587-6969
Afgreiðslutími: mán.–fös.: 12.00–20.00
Laugard.: 12.00–18.00