fbpx
Fimmtudagur 12.desember 2024
Pressan

15 ára stúlka var myrt 1993 – 31 ári síðar kom sígarettustubbur upp um morðingjann

Pressan
Föstudaginn 5. apríl 2024 08:00

Melissa Lee. Mynd:Lögreglan

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þegar fjölskylda hinnar 15 ára Melissa Lee kom heim dag einn 1993 stóðu útidyrnar opnar og innan húss voru skýr ummerki þess að slegist hefði verið. Melissa var horfin. Fjölskyldan bjó í bænum Bothell sem er nærri Seattle í Washingtonríki.

Lík Melissa fannst síðar nærri brú einni. Hún hafði verið beitt kynferðislegu ofbeldi og síðan kyrkt. Lögreglunni miðaði ekkert við rannsókn málsins og að lokum hætti hún henni en málinu var þó ekki lokað alveg.

Um aldamótin var aftur hafist handa við rannsókn þess og tókst þá að þrengja hringinn um morðingjann með því að gera DNA-prófíl af honum og með því að nota ættfræðirannsóknir. Þetta var hægt vegna eins blóðdropa, sem fannst á nærfatnaði Melissa, úr morðingjanum.

Niðurstaða DNA-rannsóknarinnar var sett inn á erfðafræðigagnagrunninn GEDmatch en hann getur fólk notað þegar það leitar ættingja sinna. Sérfræðingur bjó til ættartré út frá þeim prófílum sem líktust prófíl morðingjans. Að lokum leiddi þetta lögregluna að manni að nafni Alan Dean.

2019 bað lögreglan hann um að láta lífsýni í té til að hægt væri að gera DNA-rannsókn en hann neitaði því. Í kjölfarið fylgdust óeinkennisklæddir lögreglumenn með honum og að lokum bar það árangur þegar einn þeirra sá hann henda sígarettustubbi frá sér. Stubburinn var tekinn í vörslu lögreglunnar og DNA-rannsókn á honum sýndi að Dean var maðurinn sem myrti Melissa.

Dena var handtekinn 2020 en lengi vel var ekki ljóst hvort hægt yrði að draga hann fyrir dóm vegna andlegs ástands hans. Hann hafði dvalið á geðsjúkrahúsi í tvö ár.

Á síðasta ári kvað dómari upp þann úrskurð að hann væri hæfur til að mæta fyrir dóm.

Fyrir dómi kom fram að Dean hafði verið í samband við Melissa í gegnum símaþjónustu þar sem fólk gat rætt saman án þess að gefa upp nafn.

Verjendur hans héldu því fram að vegna bakmeiðsla sem hann varð fyrri 1993 gæti hann ekki hafa flutt lík Melissa á milli staða og losað sig við það við brúna. Þeir héldu því einnig fram að DNA-tæknin sé „vísindi í þróun“ og „ekki fullkomin“.

En málflutningur þeirra hlaut ekki náð fyrir eyrum kviðdómenda sem fundu Dean sekan um morðið.

Dómari mun tilkynna um refsingu hans þann 24. apríl næstkomandi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Maðurinn sem sagði „þinn líkami, mitt val“ handtekinn – Spreyjaði piparúða á 57 ára gamla konu sem vildi bara ræða við hann

Maðurinn sem sagði „þinn líkami, mitt val“ handtekinn – Spreyjaði piparúða á 57 ára gamla konu sem vildi bara ræða við hann
Pressan
Fyrir 2 dögum

Morðið á moldríka forstjóranum – Lögregla birtir nýjar myndir, fjölmiðlar misskildu borgarstjóra og Monopoly-seðlar vekja upp spurningar

Morðið á moldríka forstjóranum – Lögregla birtir nýjar myndir, fjölmiðlar misskildu borgarstjóra og Monopoly-seðlar vekja upp spurningar
Pressan
Fyrir 3 dögum

5 leiðir til að minnast ástvina þinna um jólin

5 leiðir til að minnast ástvina þinna um jólin
Pressan
Fyrir 3 dögum

Svona getur þú gert örbylgjuofninn skínandi hreinan á nokkrum mínútum

Svona getur þú gert örbylgjuofninn skínandi hreinan á nokkrum mínútum
Pressan
Fyrir 4 dögum

Hann naut trausts æðstu ráðamanna en undir fáguðu yfirborðinu leyndist skrímsli

Hann naut trausts æðstu ráðamanna en undir fáguðu yfirborðinu leyndist skrímsli
Pressan
Fyrir 4 dögum

Þess vegna á nætursvefninn ekki að vera undir sjö klukkustundum

Þess vegna á nætursvefninn ekki að vera undir sjö klukkustundum