Sky News skýrir frá þessu og segir að það séu vísindamenn við University of Oxford, Francis Crick Institute og University College London sem vinna að þróun bóluefnisins.
Lola Manterola, formaður samtakanna Cris Cances Foundation í Lundúnum, sagði í samtali við Sky News að um „tímamótaverkefni“ sé að ræða þar sem stórt stig sé tekið í átt að því að koma í veg fyrir krabbamein.
Vísindamennirnir nota að sögn svipaða tækni og var notuð til að þróa bóluefni AstraZeneca gegn COVID-19 við þróun nýja bóluefnisins. Markmiðið er að það virki ónæmiskerfið og fái það til að drepa krabbameinsfrumur og stöðvi lungnakrabbamein.
Verkefnið er enn á frumstigi en vísindamennirnir hafa fengið fjárveitingu upp á sem svarar til um 300 milljóna íslenskra króna til að búa til 3.000 skammta af bóluefninu.
Ef þeim tekst að búa til bóluefni sem fær ónæmiskerfið til að bregðast við, hefjast klínískar tilraunir með það að sögn Sky News. Ef niðurstöður þeirra verða jákvæðar getur það leitt til þess að tilraunir hefjist á fólki sem er í mikilli hættu á að fá lungnakrabbamein. Í þeim hópi er aðallega fólk á aldrinum 55 til 74 ára sem reykir eða hefur reykt.