Viktoria Vargas er sögð fegursta kona í heimi í umfjöllun sem enska götublaðið, Daily Star er með. Hún er unnusta Graziano Pelle sem er þekktastur fyrir það að hafa spilað með Southampton á Englandi.
Pelle lék svo lengi vel í Kína þar sem hann þénaði rosalegar upphæðir og hafði það gott með Vargar.
Vargas birtir myndir af sér á Instagram um helgina þar sem hún hrósar sjálfri sér fyrir laglegt útlit og netverjar taka undir.
Pelle kemur frá Ítalíu og hefur lengi verið talinn einn fegursti knattspyrnumaður í heimi.
Vargas er fyrirsæta og hefur gert það gott sem slíkt en netverjar telja hana vera fegurstu konu í heimi.