„Ég hélt fyrst að ég hefði vaknað í einhverskonar djöflaheimi. Þú getur ekki ímyndað þér hversu óhugnanlegt þetta var,“ segir Sharrah, sem er 59 ára íbúi í Clarksville í Tennessee, í samtali við NBC News.
Nú, rúmum þremur árum síðar, hefur hið virta lækna- og vísindarit The Lancet skrifað grein um um það sem hrjáði Sharrah og er óhætt að segja að ýmislegt forvitnilegt komi þar fram.
Á þessum tíma var Sharrah meðlimur í stuðningshópi á netinu fyrir fólk sem glímir við eða hefur glímt við sjálfsvígshugsanir. Hann leitaði álits hjá meðlimum hópsins og einn þóttist kannast við lýsingar hans.
Sagði hann að lýsingar hans kæmu heim og saman við heilkenni sem kallast PMO (e. prosopometamorphopsia) og hann ætti að leita til taugalæknis vegna málsins. Það var svo á síðasta ári sem Sharrah greindist með umrætt heilkenni sem er afar sjaldgæft.
Eins og myndirnar hér að ofan bera með sér voru andlitin sem Sharrah sá bjöguð og býsna óhugnanleg. Myndirnar voru útbúnar með aðstoð gervigreindarforrits og unnar út frá lýsingum hans í læknaviðtölum. Voru það vísindamenn við Darmouth College sem útbjuggu myndirnar sem birtust svo í nýjasta tölublaði The Lancet.
Það sem er athyglisvert við heilkennið er sú staðreynd að andlitin sem hann sér eru bara bjöguð þegar hann hittir fólk á förnum vegi – en þau eru eðlileg þegar hann til dæmis skoðar myndir af fólki í tölvuskjá eða á ljósmyndum.
PMO er sem fyrr segir sjaldgæft og lagast heilkennið oftar en ekki af sjálfu sér á nokkrum dögum eða vikum. Sharrah glímir þó enn við þessar ofsjónir sem geta varað í nokkur ár.
Vísindamenn vita ekki nákvæmlega hvað það er sem veldur PMO en grunur leikur á að einhvers konar truflun verði í þeim heilastöðvum sem greina og vinna úr upplýsingum um andlit. Sum tilfelli eru sögð tengjast mígreni, flogaveiki, heilablóðfalli eða höfuðáverkum en einnig eru dæmi um PMO þar sem ekkert af þessu kemur við sögu.
Læknar lögðu fram tvær tilgátur í tilfelli Sharrah. Annars vegar varð hann fyrir koltvísýringseitrun fjórum mánuðum áður en einkennin byrjuðu að gera vart við sig og hins vegar hlaut hann alvarlega höfuðáverka þegar hann var 43 ára. Þá datt hann aftur fyrir sig og skall með hnakkann í gangstétt.