Vladimir Pútín flutti í dag ávarp til rússnesku þjóðarinnar vegna hryðjuverkaárásarinnar á tónleikahúsið Crocus City Hall í Krasnogorsk (nálægt Moskvu) í gærkvöld. „Óvinir okkar munu ekki sundra okkur,“ sagði Pútín. Staðhæfði hann að allir sem grunaðir eru um árásina væru í haldi lögreglu en árásarmennirnir hafi reynt að flýja til Úrkaínu. BBC greinir frá þessu.
Pútín hét því að öllum árásarmönnunum yrði. Þeir hafi af ásetningi myrt með köldu blóði „borgara okkar og börnin okkar“. Pútín sagði: „Hverjir sem þeir eru, hverjir það eru sem stýra þeim, þá endurtek ég: Við munum finna og refsa öllum þeim sem standa á bak við þessa hryðjuverkamenn.“
Pútín sagði mikilvægasta verkefnið núna að koma í veg fyrir að „þeir sem standa á bak við þetta blóðbað fremji nýja glæpi.“
Staðfest dauðsföll í árásinni í gærkvöld, þar sem tónleikagestir voru skotnir til bana af færi og bensínsprengjum varpað inni í húsinu, eru komin upp í 133.
Hryðjuverkasamtökin sem kenna sig við íslamskt ríki hafa lýst yfir ábyrgð á ódæðinu.
Meðal þjóðarleiðtoga sem hafa fordæmt hryðjuverkið er forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson. Hann segir Ísland fordæma árásirnar harðlega og hugur íslensku þióðarinnar sé hjá fórnarlömbunum, fjölskyldum þeirra og rússnesku þjóðinni.
Iceland strongly condemns the terrorist attacks in Moscow last night which claimed the lives of so many innocent civilians. Our thoughts are with the victims and their families, and with the people of Russia.
— President of Iceland (@PresidentISL) March 23, 2024