fbpx
Laugardagur 14.desember 2024
Fréttir

Barnaþingmenn leggja fram sjö tillögur til úrbóta í skólastarfi

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 20. mars 2024 19:09

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Barnaþingmenn í Kópavogi vilja sjá aukna áherslu á list- og verklegt nám, jafnt aðgengi fyrir alla, reglur um símanotkun og fartölvur í stað spjaldtölva.

Þetta var niðurstaðan á árlegu barnaþingi bæjarins sem fór fram í dag. Þar komu saman fulltrúar barna úr öllum skólum Kópavogs. Tveir fulltrúar frá hverjum skóla auk fulltrúa ungmennaráðs. Alls voru þetta 30 börn sem mættu í dag til að ræða úrbótatillögur.

Ekki var þetta þó alvaran ein þar sem strákarnir í VÆB mættu til barnaþingmanna í hádeginu og tróður þar upp við mikinn fögnuð áður þingmenn fengu sér hádegishressingu eftir strit við málefnavinnuna. Loks ávarpaði sviðsstjóri menntasviðs þingið og þakkaði þátttakendum sit framlag.

Að venju voru skólaþing haldin í aðdraganda barnaþings í skólum bæjarins. Þar völdu skólarnir tillögurnar sem til umræðu voru í dag. Margar tillögurnar voru samhljóða svo á dagskrá voru sjö tillögur:

  • Aukin áhersla á list- og verklegt nám
  • Jafnt aðgengi fyrir alla (tryggja hjólastólaaðgengi og merkja með blindraletri í skólaumhverfinu)
  • Meiri aðstoð fyrir alla nemendur (auka aðstoðarkennara)
  • Fleiri vettvangsferðir/námsferðir
  • Símareglur og símalaus svæði í skólanum
  • Fartölvur í stað spjaldtölva
  • Styttri skóladag (t.d. á föstudögum) og byrja skólann senna (t.d. 8:30 og seinna fyrir nemendur á unglingastigi.

Kópavogur fékk árið 2021 viðurkenningu í tilefni þess að bærinn innleiddi Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Þar með var Kópavogur kominn í hóp Barnvænna sveitarfélaga en hugmyndafræði bæjarins byggir á alþjóðlegu verkefni UNICEF. Innleiðing sáttmálans hófst árið 2018. Barnaþing er liður í þeirri vinnu svo að börn geti ályktað og komið með tillögur til bæjarstjórnar og þar með tekið þátt í lýðræði og haft áhrif á samfélagið sitt.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Sakar Viðskiptaráð um þráhyggju og áróður – „Því er eðlilegt að spyrja hvað vaki fyrir Viðskiptaráði með jafn villandi framsetningu?“

Sakar Viðskiptaráð um þráhyggju og áróður – „Því er eðlilegt að spyrja hvað vaki fyrir Viðskiptaráði með jafn villandi framsetningu?“
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Ari Hermóður sakfelldur fyrir fjárdrátt

Ari Hermóður sakfelldur fyrir fjárdrátt
Fréttir
Í gær

Rannsókn mun fara fram á andláti Lúðvíks

Rannsókn mun fara fram á andláti Lúðvíks
Fréttir
Í gær

Lögreglan á Vestfjörðum lýsir eftir Áslaugu

Lögreglan á Vestfjörðum lýsir eftir Áslaugu