Ólafur gerir þetta að umtalsefni á Facebook-síðu sinni, en í hádeginu greindi Veðurstofa Íslands frá því að virkni eldgossins sé nokkuð stöðug og virk gosop á sömu stöðum og í gær.
Ólafur segir í pistli sínum að fyrir 2.400 árum hafi myndast sigdalur í gegnum Grindavík og allstór eldgos orðið sem mynduðu Sundhnúksgígaröðina og víðáttumikla hraunbreiðu. Hraun hafi til að mynda runnið eftir sigdalnum til sjávar í Grindavík og langt norður fyrir Stóra-Skógfell.
Ólafur birtir mynd með færslu sinni sem tekin var sumarið 2020 ofan af Þorbirni og yfir svæðið þar sem eldgosið er núna.
„Þar sést hluti af Sundhnúksgígaröðinni austur af Sýlingarfelli en einmitt þar er eldgosið núna og virðist vera að mynda aðra eins gígaröð á þessum slóðum. Í baksýn sést Fagradalsfjall og norður af því hin mikla dyngja, Þráinsskjöldur. Hún myndaðist í lok ísaldar fyrir um 14100 árum og er 5 rúmkílómetrar að stærð og byggðin í Vogum stendur á. Toppgígur hennar er rétt norðan við Fagradalsfjall.“
Ólafur bendir á gosið virðist stöðugt og að landsig í Svartsengi sem fylgir eldgosunum hafi stöðvast og land sé jafn vel tekið að rísa aðeins.
„Landris er mælikvarði á rúmmál kviku sem virðist hafa flætt stöðugt upp út möttli jarðar og er að safnast fyrir um miðbik jarðskorpunnar, líklega nálægt 7 km dýpi. Ef land er hætt að síga og landhæð orðin stöðug, bendir það til þess að nú sé komið á jafnvægi milli eldgossins og uppstreymisins úr möttli. Ef það er tilfellið gæti gosið haldið lengi áfram.“