Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, virðist hafa verið fúll og pirraður þegar hann ræddi við fréttamenn eftir tap gegn Manchester United í gær.
Klopp fór í viðtal við Viaplay í Danmörku þar sem hann var spurður út í það af hverju lið hans hefði orðið kraftlaust í framlengingu leiksins.
Klopp ræddi þá um það að Liverpool hefði spilað talsvert fleiri leiki en erkifjendur sínir undanfarið. United vann 4-3 sigur í framlengingu.
Fréttamaðurinn spurði þá hvort leikirnir væru hreinlega of margir, Klopp nennti ekki að svara því og labbaði úr viðtalinu.
„Þú ert ekki í þínu besta formi og ég er ekki í skapi fyrir þig,“ sagði Klopp og gekk úr viðtalinu.
klopp just walked out of his interview with scandinavian tv in a huff pic.twitter.com/4ZwmBfDQPb
— Richard Williams (@RichALWilliams) March 17, 2024