En þökk sé fullkominni DNA-tækni nútímans þá hefur lögreglunni í Portland tekist að leysa málið hvað varðar af hverjum beinagrindin er.
Sandra Young hvarf nokkrum árum áður en af einhverjum ástæðum var hvarf hennar aldrei tengt við beinagrindina.
Á síðari stigum rannsóknarinnar var DNA-sýni tekið úr beinagrindinni og var niðurstaða rannsóknar á því geymd í gagnagrunni yfir horfið fólk og lík sem ekki hefur tekist að bera kennsl á.
2018 var nýrri DNA-tækni beitt við rannsókn á beinagrindinni og þá var hægt að sjá hvernig líkamleg einkenni viðkomandi höfðu verið. Viðkomandi hafði verið með dökkbrúnan húðlit, brún augu og svart hár.
2021 var kafað „dýpra í erfðamengi konunnar“ og út frá þeim upplýsingum var búin til mynd af andliti hennar.
Á síðasta ári komst svo loksins skriður á málið þegar manneskja hafði skráð DNA-prófílinn sinn í opinn gagnagrunn fyrir ættfræðirannsóknir. Kom þá í ljós að viðkomandi var hugsanlega fjarskyldur ættingi hinnar óþekktu konu. Frekari rannsóknir beindu sjónum lögreglunnar að hvarfi Sandra Young í lok sjöunda áratugarins.
Lögreglan hafði uppi á systur hennar, Heidi Helwig, og ræddi við hana. Eftir það var hægt að slá því föstu að beinagrindin er af Sandra Young sem fæddist 1951.
Ekki er vitað hvað varð henni að bana en grunur leikur á að henni hafi verið ráðinn bani.