Hópur skíðagöngufólks sem varð úti í svissnesku Ölpunum um helgina gróf sér snjóhelli til þess að reyna að lifa af í miklum snjóbyl. Myndir af hellinum, sem teknar voru úr þyrlu, hafa nú verið birtar.
Fimm af þeim sex sem fórust voru úr sömu fjölskyldunni, fólkið var á aldrinum 21 til 58 ára. Ætluðu þau að ganga frá skíðasvæðinu Zermatt til Arolla við Matterhorn fjallið. En fórust á fjallinu Tete Blanche. Neyðarkall barst á laugardag en ekki var hægt að koma þeim til bjargar vegna óveðursins sem skall á.
Á myndunum sjást greinilega fótspor fólksins á fjallinu við nokkuð stórt op. Augljóst er að þau hafi reynt að grafa sér snjóhelli til þess að skýla sér frá bylnum. Það hafi hins vegar ekki tekist, þau hafi eitt af öðru misst meðvitund vegna ofkælingar.
Hinir látnu eru Svisslendingar, frá bænum Valais. Þetta eru þrír bræður og tveir frændur þeirra sem bera eftirnafnið Moix. Sjötti göngumaðurinn er 28 ára kona, Emilie Deschenaux, vinkona eins bræðranna. Hún er sú eina sem hefur ekki enn þá fundist samkvæmt breska blaðinu The Daily Mail.
„Það sem við sáum var ljótt. Við sáum að skíðagöngufólkið hafði reynt að grafa helli til þess að verja sig fyrir vindinum,“ sagði Anjan Truffer, björgunarstjóri Air Zematt, sem stýrði flugbjörgunaraðgerðunum. „Skíðagöngufólkið fraus til dauða hátt uppi, ringlað.“
Sagði hann að líkin hefðu verið dreifð um svæðið. Það hafi bent til þess að fólkið hefði orðið mjög hrætt og misst stjórnina, skömmu áður en þau misstu meðvitund.
Christian Varone, lögreglustjóri í Valais og samstarfsmaður eins göngumannanna, sagði á blaðamannafundi að björgunarfólk hefði komist nálægt því að setja sig í hættu við að reyna björgun.
„Við vorum að reyna hið ógerlega. Stundum verður maður að játa sig sigraðan fyrir náttúrunni,“ sagði hann. Björgunarfólk hafi reynt að fara upp á fjallið en þurft að snúa við til að setja sig ekki í lífshættu.
Það sama sagði Truffer í blaðaviðtali. Vindur hafi verið mjög sterkur, snjókoma mikil, skyggni lítið og veruleg hætta á snjóflóðum. Hvorki þyrlur né göngufólk hafi komist til göngufólksins.