fbpx
Þriðjudagur 16.júlí 2024
Fréttir

Leggur til nýjan íslenskan alþjóðaflugvöll á óvæntum stað

Ritstjórn DV
Mánudaginn 11. mars 2024 13:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jón Ingi Hákonarson, oddviti Viðreisnar í bæjarstjórn Hafnarfjarðar, ritar í dag aðsenda grein á Vísi. Í greininni leggur hann til staðsetningu á nýjum alþjóðaflugvelli á Íslandi. Þessi staðsetning er nokkuð óvænt og hefur ekki farið mikið fyrir henni í umræðum um framtíðarskipan flugvallamála hér á landi, Mýrar í Borgarfirði.

Jón segir jarðhræringar undanfarinna missera á Suðurnesjum neyði Íslendinga til að hugsa margt upp á nýtt, þar á meðal flugvallamálin. Staðsetningar sem hafi verið í umræðunni fyrir nýjan flugvöll komi varla lengur til greina, ekki síst Hvassahraun. Möguleg eldvirkni í Bláfjöllum þrengi síðan að öðrum helstu kostum sem nefndir hafi verið, Hólmsheiði og Suðurland.

Jón leggur því til Mýrar í ljósi þess að byggðaþróun á Suðvesturhorninu verði óhjákvæmilega með öðrum hætti en flestir sáu fyrir sér áður en yfirstandandi tímabil jarðhræringa hóf innreið sína:

„Vaxtarmörk höfuðborgarsvæðisins eru þrengri og eini raunhæfi möguleikinn er að vaxa til norðurs. Vesturlandið mun því vaxa og styrkjast á næstu áratugum. Akranes og Borgarnes munu að öllum líkindum leika stórt hlutverk í þeirri byggðarþróun.“

Hann segir að Mýrar sé mörgum góðum kostum búnar fyrir flugvallastarfsemi og fróðir menn hafi tjáð honum að þar væri hægt að koma fyrir að minnsta kosti tveimur flugbrautum.

Möguleikar á að koma upp stórskipahöfn í Hvalfirði passi vel við að koma flugvelli í gagnið á Mýrum. Þetta gæti liðkað fyrir útflutningi á ferskum fiski frá Akranesi, Snæfellsnesi og Vestfjörðum.

Jón Ingi skorar að lokum á stjórnvöld að kanna kosti þess að koma upp alþjóðaflugvelli á Mýrum til hlítar:

„Flugstöð Egils Skallagrímssonar hljómar ágætlega.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Vísaði frá máli gegn Donald Trump varðandi stuld á leynilegum skjölum – Skipaði sjálfur dómarann í embætti

Vísaði frá máli gegn Donald Trump varðandi stuld á leynilegum skjölum – Skipaði sjálfur dómarann í embætti
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Pétur Jökull verður dreginn fyrir dóm í ágústmánuði

Pétur Jökull verður dreginn fyrir dóm í ágústmánuði
Fréttir
Í gær

Trump í fyrsta viðtalinu eftir árásina – „Ég á að vera dauður“

Trump í fyrsta viðtalinu eftir árásina – „Ég á að vera dauður“
Fréttir
Í gær

Safnað fyrir fjölskyldu Viðars – „Setti mig og börnin okkar alltaf í fyrsta sæti“

Safnað fyrir fjölskyldu Viðars – „Setti mig og börnin okkar alltaf í fyrsta sæti“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Íslendingur dæmdur í þriggja mánaða fangelsi í Danmörku fyrir að kýla unnustu sína margsinnis á bílastæði

Íslendingur dæmdur í þriggja mánaða fangelsi í Danmörku fyrir að kýla unnustu sína margsinnis á bílastæði
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Gangandi fólk kemst ekki lengur eftir gangstéttum í Norðurmýri – Bílastæðavandinn mikill

Gangandi fólk kemst ekki lengur eftir gangstéttum í Norðurmýri – Bílastæðavandinn mikill