Á dögunum var greint frá því að söfnun væri hafin fyrir þessa 25 ára konu sem liggur nú í öndunarvél og berst fyrir lífi sínu. Nú þegar hafa tæplega 30 þúsund Bandaríkjadalir safnast.
Sjá einnig: Skelfileg örlög heimsþekktra klámstjarna
Michael Willis, stjúpfaðir Emily, segir að fjölskyldan búi sig undir það versta þar sem litlar framfarir hafi orðið síðustu vikur. Mail Online greinir frá þessu.
Willis var á meðferðarheimili sem frægt og ríkt fólk sækir gjarnan þegar hún tók of stóran skammt af efnum. Ekki liggur fyrir hvaða efni hún tók.
Hún hafði látið lítið fyrir sér fara síðustu mánuði og segir Michael að hún hafi aðeins verið rúm 40 kíló þegar hún fór í meðferð. Hún hafi verið staðráðin í að ná bata.
Willis fæddist í Argentínu 29. desember 1998 og bar þá nafnið Litzy Lara Banulos. Hún flutti sjö ára gömul til Utah í Bandaríkjunum eftir að móðir hennar giftist bandarískum manni. Hún hóf feril sinn í klámmyndum árið 2017 og hafði á ferli sínum unnið til fjölmargra verðlauna.