fbpx
Sunnudagur 15.desember 2024
Fréttir

Með viðvarandi færniskerðingu eftir hrottalega árás unglinga í undirgöngum í Breiðholti – Móðir ákærða sagði hann eiga þetta skilið

Ritstjórn DV
Föstudaginn 8. mars 2024 12:04

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ungur maður hefur verið sakfelldur fyrir hrottalega árás sem átti sér stað í undirgöngum við verslunina Iceland Vesturberg í Reykjavík árið 2019. Er hann einn sakfelldur þó ljóst sé að hann var ekki einn að verki, en maðurinn neitaði að segja til samverkamanna sinna enda neitaði hann sök. Maðurinn var ólögráða þegar árásin átti sér stað, er á betri stað í lífinu og auk þess voru ýmsir annmarkar á rannsókn málsins sem og verulegur dráttur á rannsókn, saksókn og meðferð máls. Unga manninum er því ekki gerð refsing haldi hann skilorð í tvö ár. Brotaþoli í málinu hefur ekki enn, tæpum fimm árum eftir árásina, náð sér að fullu.

Árásin átti sér stað við undirgöng nálægt verslun Iceland í Vesturbergi, Breiðholti, árið 2019. Þar var brotaþoli á gangi þegar hópur unglinga vék sér að honum. Forsprakki hópsins krafði hann um fíkniefni, en þegar brotaþoli kannaðist ekki við að hafa slík efni á sér, tók einn unglingurinn fram piparúða, spreyjaði á brotaþola áður en hópurinn vék sér að honum með spörkum, höggum og óþekktu vopni.

Það var par sem bjó þarna nærri sem hafði samband við lögreglu. Þau greindu frá því að hafa heyrt læti um nóttina og farið út á svalir að að kanna hvað væri í gangi. Þau hafi séð hóp unglinga króa mann af og beita hann svo ofbeldi í hrottalegri aðför sem hélt áfram þó brotaþoli væri fallinn til jarðar. Parið hrópaði á hópinn að samband yrði haft við lögreglu. Svo fóru þau út og fundu brotaþola þar vankaðan, alblóðugan og illa haldinn. Þau greindu eins frá því að hafa séð mann og konu ásamt hund þar nærri. Konan hafi kallað ókvæðisorðum á brotaþola og svo haldið á brott.

Móðir geranda sagði hann eiga árásina skilið

Brotaþoli átti erfitt með að greina lögreglu frá atvikum, enda var hann með djúpa skurði á andliti sem blæddi mikið úr. Brotaþoli var í kjölfarið fluttur á slysadeild þar sem hann fékk 32 saumspor til að loka 10-12 sm skurð á kinn, sem var gapandi rétt undir hægra auga, og svo 3-4 sm djúpan, gapandi skurð á enni. Hann var með fleiri áverka, svo sem lítinn skurð við munnvik og djúp sár á höfuðleðri. Náði hann þó að lýsa atvikum í grófum dráttum og lögreglu grunaði strax að ákærði drengurinn væri einn gerenda. Brotaþoli hafði greint frá vitni, konu með loðinn hund, sem hafi hrópað að hann ætti árásina skilið. Við þessa lýsingu taldi lögregla ljóst að þarna hafi verið um móður ákærða að ræða. Því var haldið á heimili ákærða þar sem hann var ásamt fjölda félaga sinna. Hann var handtekinn og mynd tekin af fatnaði hans, blárri Adidas-peysu og levis-gallabuxum.

Við réttarmeinarannsókn kom í ljós að á buxunum mátti finna blóð úr brotaþola bæði framan og aftan á buxnaskálmum. Við húsleit lagði lögregla hald á hníf, kylfur, kúbein og ónothæfan piparúða. Greining á áverkum brotaþola bentu til þess að eggvopni hafi verið beitt í árásinni, en brotaþoli sjálfur sagðist eiga erfitt með að muna eftir vopnunum en kylfa og exi kæmi upp í huga hans.

Ákærði kannaðist ekkert við árásina. Hann hafi bara verið heima með vinum og mömmu sinni. Svo hafi bara lögreglan mætt á svæðið þegar hann var farinn að sofa. Næst þegar hann var yfirheyrður var þó komið annað hljóð í drenginn. Hann sagðist þá hafa farið út með móður sinni og félaga. Hann hafi þá verið vitni að líkamsárás þar sem hávaxnir menn réðust á brotaþola. Ákærði hafi hlaupið að brotaþola þar sem hann lá liggjandi í blóði sínu, kropið hjá honum til að kanna líðan hans. Það var þá sem lögregla greindi ákærða frá því að blóð úr brotaþola hafi fundist á buxum hans. Skýrði ákærði það svo að blóðið hafi smitast á buxurnar þegar hann hlúði að brotaþola. Fyrir dómi hins vegar kannaðist hann ekki lengur við að eiga téðar buxur og kannaðist ekki við að hafa kropið hjá eða snert brotaþola.

Vitni ótrúverðug

Fjöldi þáverandi félaga ákærða báru vitni í málinu og kannaðist engin við árásina og flestir báru við minnisleysi, að minnsta kosti að hluta, um atvik þetta kvöld. Allt voru þetta unglingar og á einhverjum tíma höfðu þeir sjálfir verið sakborningar í málinu áður en rannsókn gegn þeim var felld niður. Móðir ákærða gaf skýrslu hjá lögreglu og fyrir dómi og tók frásögn hennar nokkrum breytingum. Fyrst sagðist hún hafa farið ein út þetta kvöld, næst sagði hún ákærða hafa verið með sér. Hún sagðist hafa séð árásina og sagt syni sínum að flýta sér heim, sem hann hafi gert. Hún hafi svo lagt að syni sínum að bendla sig ekki við árásina þegar lögregla kom að heimili þeirra.

Fram kom að brotaþoli þekkti ekki neinn af drengjunum þegar þeir réðust á hann. Hann bar þó kennsl á ákærða eftir að hann fékk vinabeiðni á Facebook frá móður hans. Samþykkti hann beiðnina og skoðaði myndir og áttaði sig þá á því að sonur konunnar væri einn gerenda hans.

Dómari í málinu mat framburð ákærða, vina hans og móður ótrúverðuga. Ákærði og móðir hafi ítrekað breytt framburði sínum og framburð vinanna þyrfti að meta í því ljósi að þeir hafi um tíma verið sakborningar í málinu og eins vinir ákærða. Taldi dómari það hafið yfir skynsamlegan vafa að ákærði væri einn gerenda í málinu og ljóst af áverkum brotaþola að hér væri um grafalvarlega árás að ræða.

Viðvarandi afleiðingar og endurhæfing ekki gengið

Geðlæknir bar vitni í málinu og greindi frá því að brotaþoli glími í dag við erfiða og alvarlega áfallastreituröskun. Hann sé með viðvarandi þunglyndi, stöðugan ótta og hafi um langa hríð verið í felum og eigi erfitt með að vera í kringum fólk. Ljóst sé að þar sem tæp fimm ár eru liðin frá atvikum máls að hér sé um alvarlegar afleiðingar að ræða og hafi meðferð og endurhæfing gengið illa. Taldi geðlæknirinn að tíminn muni leiða í ljós að brotaþoli sé haldinn heilaskaða eftir árásina, en slíka höfuðáverka sé oft erfitt að sanna með rannsóknum og hafi ekki tekist að gera slíkt með brotaþola enn sem komið er, hins vegar sé óumdeilt að brotaþoli hafi einkenni slíks, hann sé með minnisleysi, einbeitingarerfiðleika, tjáningarerfiðleika, framtaksleysi og óvirkni.

Taldi dómari að ekki væri hægt að slá því á föstu að um heilaskaða væri að ræða, en að öðru leyti hafi áverkar og langtíma afleiðingar vissulega verið alvarlegar. Var ákærða gert að greiða 1,2 milljón í miskabætur og 1,3 milljónir í skaðabætur út af þeim kostnaði sem brotaþoli hefur þurft að bera vegna árásarinnar sem og fyrir þá muni hans sem fóru forgörðum í árásinni. Hins vegar vísaði dómari frá kröfu um viðurkenningu á skaðabótaskyldu ákærða vegna varanlegs líkamstjóns brotaþola, en krafan þótti vanreifuð.

Alvarlegar athugasemdir við rannsókn

Dómari vék sér þá að rannsókn málsins og gerði alvarlegar ávirðingar. Fyrir það fyrsta væri rannsókn aðfinnsluverð þegar kom að því að finna hina gerendur málsins. Hér hefði verið hægt að standa fyrir formlegri sakbendingu fyrir brotaþola og sjónarvotta. Eins var verulegur ágalli á skýrslutöku ákærða því faðir hans, sem er vitni í málinu, fékk að vera viðstaddur. Á þeim tíma var vitað um ámælisverða aðkomu föður að málinu sem var til þess fallin að skaða rannsóknina. Svo þurfi að horfa til þess að verulegur dráttur var á rannsókn málsins fyrir hið fyrsta, svo ákærumeðferð og loks meðferð máls. Tók dómari fram að ákærði og fleiri vitni hafi verið ólögráða þegar atvik áttu sér stað. Hafi lögregla ekki tekið nægilegt mið af því að hér væri um unga einstaklinga að ræða.

Þegar kom að ákvörðun refsingar tók dómari fram að ákærði hafi verið ólögráða á þessum tíma og auk þess bjó hann ekki við ákjósanlegar aðstæður. Hann sé komin í betri máli í dag og ekki sé vitað til þess að hann hafi í kjölfarið gerst aftur brotlegur við lög. Því kvað dómari ekki upp refsingu heldur frestað ákvörðun refsingar og fellur hún niður að tveimur árum liðnum ef ákærði heldur almennt skilorð.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Dóru Björt brugðið yfir vöruhúsinu í Álfabakka – Viðstödd borgarráðsfund þar sem byggingarmagnið var samþykkt

Dóru Björt brugðið yfir vöruhúsinu í Álfabakka – Viðstödd borgarráðsfund þar sem byggingarmagnið var samþykkt
Fréttir
Í gær

Valkyrjurnar halda ótrauðar áfram

Valkyrjurnar halda ótrauðar áfram
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Grindvíkingar hentu 327 tonnum meira af sorpi í sumar en í fyrra

Grindvíkingar hentu 327 tonnum meira af sorpi í sumar en í fyrra
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ari Hermóður sakfelldur fyrir fjárdrátt

Ari Hermóður sakfelldur fyrir fjárdrátt
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Æsispennandi kapphlaup um að verða „Trump-hvíslari“ – Hver er með forystuna?

Æsispennandi kapphlaup um að verða „Trump-hvíslari“ – Hver er með forystuna?
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Zelenskyy segir að 43.000 úkraínskir hermenn hafi fallið í stríðinu

Zelenskyy segir að 43.000 úkraínskir hermenn hafi fallið í stríðinu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Rannsókn mun fara fram á andláti Lúðvíks

Rannsókn mun fara fram á andláti Lúðvíks
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Lögreglan á Vestfjörðum lýsir eftir Áslaugu

Lögreglan á Vestfjörðum lýsir eftir Áslaugu