Fólk innan knattspyrnuheimsins á það til að koma sér í fréttirnar fyrir eitthvað allt annað en fótbolta. Breska götublaðið Daily Star tók saman játningar nokkurra stjarna úr svefnherberginu.
Ashley og Cheryl Cole
Ashley og Cheryl voru glæsileg hjón á sínum tíma og opnaði hún sig eitt sinn um kynlíf þeirra. „Við tæklum hvort annað í svefnherberginu og hann elskar að nudda fæturnar á mér,“ sagði Cheryl á sínum tíma um kynlíf þeirra.
David og Victoria Beckham
Victoria hefur einnig tjáð sig um kynlíf þeirra David í gegnum tíðina. Til að mynda sagði hún frá því að hann væri með mjög stórt typpi og að hann keypti endalaust af kynþokkafullum undirfötum á hana.
Jese Rodriguez og Aurah Ruiz
Ekki eins þekkt og þau sem eru nefnd hér á undan en samband þeirra rataði þó ansi oft í fréttirnar, enda ansi stormasamt. Ruiz opnaði sig eitt sinn um það að hún notaði gífurlega mikið af kynlífstækjum og hún tæki þau meira að segja fram yfir Jese. „Ég er mikill aðdáandi kynlífstækja og nota þau öll með maka mínum. Hann þekkir ekki öll tækin en ég nota þau samt og hann elskar það.“
Adrian Mutu
Hans frásagnir tengdar kynlífi eru aðeins öðruvísi en um er að ræða mikinn vandræðagemsa sem fór til að mynda í sjö mánaða mann er hann var leikmaður Chelsea þar sem kókaín fannst í blóði hans. Mutu hafði þó sínar ástæður. „Ég er ekki háður eiturlyfjum. Ég tók þetta bara til að bæta frammistöðu mína kynferðislega. Það hljómar skringilega en það er sat,“ sagði hann á sínum tíma.