Aðsend grein frá Alkastinu:
Í nýjasta þætti Alkastsins settust þeir Arnór Jónsson og Gunnar Wiium niður með hinum ástsæla og friðelskandi forsetaframbjóðanda Ástþóri Magnússyni.
Ástþór sem efnaðist fyrir um 30 árum síðan á rekstri tölvusyrirtækja fékk vitrun eða sýn þar sem hann áttaði sig á skertri samkennd viðskiptaheimsins og útfrá þeirri sýn tók ákvörðun um að helga líf sitt baráttu fyrir friði á jörðu. Hann stofnaði friðarsamtökin Frið 2000 á sínum tíma og vöktu samtökin mikið umtal og mikla athygli fyrir um tuttugu árum síðan. Hann hefur ítrekað boðið sig fram tl forsetaembættis síðan og þá með það að leiðarljósi að virkja embættið til friðar og sáttar í heiminum. Hann er knúin áfram af sýn sem segir að Ísland verði miðpunktur friðar á jörðu og skapi þannig fordæmi fyrir viðleitni sem hann vill meina að sé í undanhaldi í alþjóða samskiptum.
Friðarsamtökin Friður 2000 stóðu fyrir gjörningum sem fólu í sér að flogið var á átakasvæði með gjafir sem vott um náungakærleik og lýsir hann atburðarrás þar sem þeir í seinna skiptið voru stöðvaðir af lögreglu á miðri flugbraut á leið sinni í annað skiptið til Íraks með mörg tonn af gjöfum frá íslenskum börnum til stríðshrjáðra íraskra barna. Hann veit ekki hvaðan sú skipum kom frá en flugvélin var stöðvuð nánast í flugtaki og ferðin ekki farin.
Í nóvember 2002 var hann handtekinn. Lögreglan fór inn á heimili hans og gerði þar meðal annars húsleit í kjölfar þess að Ástþór sendi fjölmiðlum orðsendingu í tölvupósti um að Friður 2000 hafi rösktuddan grun um að ráðist verði gegn íslenskri flugvél með flugráni eða sprengjutilræði. Ástþór var handtekin í miðjum kvöldverði á veitingarstað með vinum og settur í viku einangrun og hótað 16 ára fangelsi ef hann yrði fundin sekur útfrá broti á hryðjuverkarlögum. Í dómsal mætti hann svo í jólasveinabúning og vakti það mikil viðbrögð og má segja að það hafi misst marks og verið slitið úr samhengi í fjölmiðlaumfjöllun, sem hann vill meina að sé takmörkuð og stöðluð út frá vissri mötun, og fyrir vikið sé sannleikurinn sem nær til almúgans takmarkaður.
Talið barst að Írakstríðinu og Gunnar spyr hann af hverju hann haldi að Halldór Ásgrímsson og Davíð Oddson sem þá skrifuðu undir stuðningsyfirlýsingu við innrásina í Írak skuli aldrei verið dregnir til saka eða ábyrgðar þar sem stríðið var háð af fölskum forsendum. Fölskum forsendum sem Ástþór vill meina að að hafi alltaf legið ljóst fyrir, meira að segja þegar umræddir embættis menn skrifuðu undir fyrir hönd þjóðarinnar og án nokkurnar atkvæðagreiðslu. Ástþór finnst það hneisa og skandall að engin skuli sæta ábyrgð fyrir að hafa vísvítandi tekið þátt í þessari innrás sem hann vill meina að hafi í raun bara verið fjöldamorð.
Hann var í viðtalinu einnig spurður hvernig hann myndi beita sér sem forseti ef hann sæti nú á tímum réttarhalda Julian Assange í London sem merkilega lítið er fjallað um í fjölmiðlum. Ástþór sagði þetta mál allt vera skandal því Assange sem setið hefur í fangelsi síðast liðin ár hafi í raun ekki gert neitt af sér annað en að birta sönnunargögn um stríðglæpi Bandaríkjahers og meira að segja hafi ekki bara sá sem lak gögnunum í Assange á sínum tíma verið dæmdur fyrir lekan heldur hafi þeir hermenn sem komu þarna fram með morðum á saklausum borgurum einnig verið dæmdir. Hann vill meina að ef hann sæti í embætti myndi hann berjast fyrir því að Assange yrði veittur íslenskur ríkisborgararéttur.
Ástþór segir að hvað hann persónulega varðar þá sé og alltaf hafi verið hjólað í manninn á kostnað málstaðarins sem hann segist standa fyrir. Í raun segist hann ekkert endilega vilja vera forseti og væri klárlega tilbúin ef einhver annar myndi taka það að sér svo lengi sem embættið yrði virkt til friðarumleitinga, hann vill meina að það sé það eina sem hann sækist eftir og því ekki á höttunum eftir persónulegri velgengni heldur sækist hann bara eftir að gera rétt og tala fyrir frið og hvar annarstaðar en í embætti forseta er það besti vettfangurinn. Hann segir að vinnan í höndum friðarsamtaka einu og sér skili nánast engu og því mikilvægt að málstaðurinn fái öfluggt plattform þar sem athygli sé á vakin með hjálp fjölmiðla og að hægt sé að hafa áhrif á þingheim, embættismenn og viðskiptalíf frá einmitt Bessatöðum.
Þáttinn í heild sinni má einnig finna á öllum helstu streymisveitum eins og Youtube og Spotify.