fbpx
Sunnudagur 15.desember 2024
Pressan

11 ára drengur látinn eftir stórhættulega samfélagsmiðlaáskorun

Pressan
Fimmtudaginn 7. mars 2024 08:38

Tommie-lee með föður sínum.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Aðstandendur ellefu ára drengs hvetja foreldra til að gera sitt besta til að vera vera meðvitaðir um þær hættur sem geta leynst á samfélagsmiðlum.

Tommie-lee Gracie Billington, 11 ára drengur í Lancaster á Englandi, fannst látinn á heimili vinar síns síðastliðinn laugardag en grunur leikur á að hann og félagar hans hafi verið að apa eftir áskorun sem hefur breiðst út á samfélagsmiðlum undanfarin misseri.

Áskorunin felur í sér að anda að sér hættulegum efnum í þeim tilgangi að komast í vímu, en oftar en ekki er um að ræða efni sem eru aðgengileg hverjum sem er. Þetta eru til dæmis leysiefni og gashylki sem finnast í svitalyktareyðum og rjómasprautum.

Efnin hafa áhrif á miðtaugakerfi líkamans og hægja á heilastarfseminni sem getur valdið tímabundinni vímu. En afleiðingarnar geta verið stórhættulegar eins og þetta dæmi sýnir og komið fram í hjartastoppi eða köfnun.

Tommie-lee hafði gist heima hjá félaga sínum nóttina áður og virðast drengirnir þá hafa verið að fikta með hættuleg efni. Hann fannst svo meðvitundarlaus morguninn eftir og var úrskurðaður látinn við komuna á sjúkrahús.

Tina Burns, amma Tommie, segir við breska fjölmiðla að hún vilji að samfélagsmiðlar á borð‘ við TikTok verði bannaðir og öllum börnum undir 16 ára verði bannað að nota samfélagsmiðla. Í umfjöllun Mail Online kemur fram að forsvarsmenn TikTok hafi reynt að koma í veg fyrir dreifingu myndbanda sem sýna athæfið en betur megi ef duga skal.

„Þetta er hrikalega erfitt en við viljum leggja okkar af mörkum til að koma í veg fyrir að önnur börn geri eitthvað svipað,“ segir hún.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Áttræð kona lét lífið út af bilun í rafmagnsrúmi – „Hún þjáðist allan tímann“

Áttræð kona lét lífið út af bilun í rafmagnsrúmi – „Hún þjáðist allan tímann“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Dularfullir drónar herja á New Jersey – Enginn veit hvaðan þeir koma eða hvers vegna þeir eru þarna

Dularfullir drónar herja á New Jersey – Enginn veit hvaðan þeir koma eða hvers vegna þeir eru þarna
Pressan
Fyrir 3 dögum

Tik-Tok-maðurinn dæmdur

Tik-Tok-maðurinn dæmdur
Pressan
Fyrir 3 dögum

Fann bróður sinn eftir 25 ára aðskilnað – Nú hefur sagan tekið óvænta og ljóta stefnu

Fann bróður sinn eftir 25 ára aðskilnað – Nú hefur sagan tekið óvænta og ljóta stefnu