fbpx
Sunnudagur 15.desember 2024
Pressan

Heimsþekktri Ferrari bifreið var stolið um hábjartan dag – Nú er hún fundin 29 árum síðar

Pressan
Miðvikudaginn 6. mars 2024 07:00

Bíllinn fannst nýlega, tæpum 29 árum eftir að honum var stolið. Mynd:Lundúnalögreglan

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Austurríski Formúlu 1 ökuþórinn Gerhard Berger átti svo sannarlega óvenjulegan og slæman dag þann 30. apríl 1995. Hann tók þátt í Formúlunni í San Marínó og endaði í þriðja sæti. Það var ekki svo óvenjulegt að hann kæmist á verðlaunapall því hann sigraði í 10 keppnum á ferlinum.

Það sem gerðist þennan dag var að rauðri Ferrari Testarossa F512 bifreið hans var stolið við hótelið sem hann gisti á.  Hann sá þegar bifreiðinni var stolið og reyndi að stöðva þjófinn með því að stilla sér upp fyrir framan bílinn. En þjófurinn lét það sig engu skipta og ók áfram og neyddist Berger til að stökkva frá á síðustu sekúndu. Samkvæmt fréttum fjölmiðla á þessum tíma þá munaði aðeins nokkrum sentimetrum að þjófurinn æki á Berger.

Berger hoppaði þá inn í Volkswagen Golf bifreið og elti bílinn sinn en þrátt fyrir að búa yfir miklum hæfileikum og akstursreynslu þá hvarf Ferrari bifreiðin sýnum eftir skamma stund.

Þennan sama dag var Ferrari Testarossa bifreið Jean Alesis, sem keppti einnig í Formúlu 1, stolið frá þessu sama hóteli.

Ekkert spurðist til bílanna eftir þetta, fyrr en í síðustu viku. Þá fann Lundúnalögreglan bíl Berger. Hún fékk ábendingu frá Ferrari í janúar um að Bandaríkjamaður væri að kaupa bílinn frá breskum aðila. Ferrari hafði kannað bílinn fyrir kaupandann og fannst sem ekki væri allt eins og það átti að vera varðandi bílinn og lét Lundúnalögregluna því vita.

Eftir stutta rannsókn lögreglunnar kom í ljós að þetta var bíll Berger og að hann hafði verið sendur til Japan eftir að honum var stolið. Þaðan kom hann síðan til Bretlands.

Ferrari Testarossa F512 er þekkt merki, meðal annars vegna þess að bifreið af þessari tegund var notuð í sjónvarpsþáttunum Miami Vice og vegna þess að þetta var síðasti ofurbíllinn sem var framleiddur áður en Enzo Ferrari, forstjóri Ferrari, lést.

Aðeins 501 eintak var smíðað og kostaði hver bifreið sem svarar til um 110 milljóna íslenskra króna á þeim tíma. Verðmæti bifreiðarinnar núna er sem svarar til um 40 milljóna íslenskra króna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Allir mættu nema Mbappe
Pressan
Fyrir 2 dögum

Áttræð kona lét lífið út af bilun í rafmagnsrúmi – „Hún þjáðist allan tímann“

Áttræð kona lét lífið út af bilun í rafmagnsrúmi – „Hún þjáðist allan tímann“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Dularfullir drónar herja á New Jersey – Enginn veit hvaðan þeir koma eða hvers vegna þeir eru þarna

Dularfullir drónar herja á New Jersey – Enginn veit hvaðan þeir koma eða hvers vegna þeir eru þarna
Pressan
Fyrir 3 dögum

Tik-Tok-maðurinn dæmdur

Tik-Tok-maðurinn dæmdur
Pressan
Fyrir 4 dögum

Fann bróður sinn eftir 25 ára aðskilnað – Nú hefur sagan tekið óvænta og ljóta stefnu

Fann bróður sinn eftir 25 ára aðskilnað – Nú hefur sagan tekið óvænta og ljóta stefnu